Atvinnulífið vill ekki lengur krónuna 12. febrúar 2011 11:00 Finnur Oddsson. Endurreisn efnahagslífsins hefur gengið of hægt, segir framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Fréttablaðið/vilhelm „
Þetta kemur ekki á óvart. Öll óvissa sem tengist krónunni og gengi hennar er eingöngu til vandræða,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Rétt rúm sextíu prósent forsvarsmanna um fjögur hundruð fyrirtækja telja annan gjaldmiðil en íslensku krónuna þjóna best hagsmunum viðskiptalífsins, samkvæmt niðurstöðum viðhorfskönnunar Viðskiptaráðs. Tæpur fjórðungur þátttakenda í könnuninni, 24 prósent, telur krónuna gegna hlutverkinu vel. Í könnuninni var ekki spurt hvaða gjaldmiðill þátttakendur töldu þjóna hagsmunum landsins betur en krónan. Mestur stuðningur við annan gjaldmiðil er í þjónustu- og orkugeiranum og í smásölu en langminnstur í fiskvinnslu og útgerð. Finnur bendir á að annars vegar sé krónan varin með höftum sem geti ekki gert annað en dregið úr trúverðugleika hennar, bæði hér og erlendis. Hins vegar endurspegli virði hvers gjaldmiðils, bæði gengi hans og trúverðugleiki, heilbrigði þess efnahagslífs sem hann grundvallast á. „Flestir eru sammála um að of hægt hefur gengið að koma efnahagslífinu af stað. Það hlýtur að rýra virði krónunnar. Vegna hafta endurspeglast þessi virðisrýrnun hugsanlega síður í genginu. En það gera viðhorf forsvarsmanna atvinnulífsins til krónunnar,“ segir Finnur. Viðhorfskönnunin var gerð dagana 13. til 31. janúar síðastliðinn. Í úrtakinu voru 720 forsvarsmenn í atvinnulífinu og var svarhlutfall 57 prósent. - jab
Mest lesið „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira