Viðskipti innlent

Verðbólgumarkmið Seðlabankans ekki náðst síðan 2004

Ársverðbólgan hefur ekki náð verðbólgumarkmiði Seðlabankans upp á 2,5% síðan í apríl 2004. Verðbólgan mælist nú 2,6% eins og Hagstofan greindi frá í morgun.

Mælingin í morgun er töluvert undir væntingum greiningardeilda sem yfirleitt höfðu gert ráð fyrir verðbólgu upp á 3% til 3,1% eða að vísitala neysluverðs myndi hækka um 0,4% til 0,5%. Hækkunin reyndist 0,05%.

Ingólfur Bender forstöðumaður greiningar Íslandsbanka segir að munurinn á spám og niðurstöðu liggi einkum í að hækkun á rafmagnskostnaði hafi ekki skilað sér inn í mælinguna eins og búist hafði verið við. Þá hafi ekki verið gert ráð fyrri þeirri miklu lækkun á flugfargjöldum til útlanda sem mældist, en þau lækkuðu um 19% milli mánaða. Mikið flökt hefur verið í þeirri mælingu og nær vonlaust að spá fyrir um liðinn með vissu. Einnig eru ýmsir innfluttir liðir að lækka meira en útlit var fyrir.

Ingólfur segir að hvað sem því líði er ljóst að góður árangur hafi náðst í að minnka verðbólguna á undanförnum mánuðum.

„Það er áfram lítil sem engin verðbólga í pípunum og við reiknum með að verðbólgan fari undir markmið Seðlabankans um áramót eða snemma á næsta ári," segir Ingólfur. „Það er flest sem bendir til þess. Lítil innflutt verðbólga er framundan þar sem m.a. gengi krónunnar hefur verið að styrkjast á undanförnum mánuðum, launahækkanir hafa verið hóflegar og verð á íbúðahúsnæði hefur verið stöðugt."

Ingólfur segir að það sem geti valdið hækkun vísitölunnar um áramótin eru einkum skattahækkanir og hækkanir á opinberum gjöldum. Hrávöruverðshækkun erlendis gæti einnig haft einhver áhrif. Verðbólgan ætti samt að vera um eða undir markmiði Seðlabankans megnið af næsta ári.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×