Seldu minkaskinn fyrir hátt í 300 milljónir í Kaupmannahöfn 15. september 2010 13:02
Íslenskir loðdýraræktendur hafa selt skinn fyrir hátt í 300 milljónir kr. á uppboðinu sem nú stendur yfir hjá Kopenhagen Fur í Kaupmannahöfn. Þar með liggur ljóst fyrir að söluverðmæti íslenskra minkaskinna á þessum markaði verður yfir milljarði kr. á árinu.Björn Halldórsson formaður Sambands íslenskra loðdýraræktenda segir að á uppboðinu sem nú stendur yfir hafi um 50.000 íslensk minkaskinn selst á að meðalverðið á þeim hafi verið á bilinu 5.500 til 6.000 kr. stykkið. Þetta er nokkru minna verð en fengist hefur fyrir skinnin á fyrri uppboðum ársins en Björn segir að það stafi af því að skinnin sem nú voru seld eru í lélegri gæðaflokkum en á fyrri uppboðum árisins. Meðalverðið hefur hingað til legið á bilinu 7.000 til 8.000 kr.„Verðið á minkaskinnum hefur verið hátt undanfarið ár og allt bendir til að það haldist hátt á næstu árum," segir Björn. „Ekkert lát er á eftirspurn eftir þessum skinnum í Kína og Rússland er aftur að koma inn á markaðinn sem stór kaupandi. Á móti lítur ekki út fyrir að framboðið aukist á næstunni."Visir.is hefur áður greint frá því að söluverðmæti minkaskinna frá íslenskum loðdýraræktendum í ár mun að minnsta kosti nema einum milljarði króna en fyrir tæpum áratug var talið að þessi búgrein ætti vart framtíð fyrir sér.Alls voru íslensk minkaskinn seld fyrir 370 milljónir króna á uppboði hjá Kopenhagen Fur í lok júní. Um var að ræða þriðja uppboð ársins en á hinum tveimur seldust íslensk minkaskinn fyrir rúmlega 400 milljónir króna. Með uppboðinu nú er söluverðmætið því orðið í kringum 1,1 milljarð kr.
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira