Landsbankinn hefur gert fjölmarga „kyrrstöðusamninga“ 15. september 2010 11:22
Landsbankinn býður bæði einstaklingum og fyrirtækjum fjölmörg úrræði til lausnar á skuldavanda, en ekki sé til sérstakt form samninga sem bera heitið „kyrrstöðusamningar." Í þeim skilningi hafi því enginn slíkur samningur verið gerður. Sé hugtakið hins vegar túlkað á þann veg að kyrrstöðusamningur feli í sér að innheimtuaðgerðum sé frestað á meðan viðskiptavinur inni af hendi tilteknar greiðslur samkvæmt samningi hafi fjölmargir slíkir samningar verið gerðir, jafnt við einstaklinga og fyrirtæki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá NBI hf. ( Landsbankinn) sem hefur svarað spurningum Umboðsmanns skuldara og Eftirlitsnefndar Alþingis um svokallaða kyrrstöðusamninga. Umboðsmaður óskaði eftir upplýsingum um þau úrræði sem fyrirtækjum í skuldavanda standa til boða og spurði hvort einstaklingum stæði til boða að semja um kyrrstöðu skulda sinna. Í svari bankans kemur einnig fram að allir samningar við viðskiptavini bankans um tímabundnar lausnir á skuldavanda þeirra feli í sér að innheimtuaðgerðum verði ekki beint að þeim á meðan samningur sé í gildi. Það er stefna Landsbankans að gæta jafnræðis í aðstoð við alla einstaklinga, fyrirtæki og aðra viðskiptamenn í skuldavanda. Þeirri stefnu er framfylgt og því ekki um að ræða að sérstök ívilnandi kjör standi einstökum aðilum til boða, hvorki stærstu eigendum eða lántakendum í bönkum fyrir hrun né öðrum. Rétt er jafnframt að fram komi, vegna misskilnings sem oft gætir, að Landsbankinn á engan hlut að kyrrstöðusamningi Arion banka við Gaum hf. og að bankinn á engin veð í húsnæði félagsins í Vaðlaheiði gengt Akureyri. Af fjölmiðlaumfjöllun hefur mátt skilja að svo væri, en því er ekki þannig farið. Landsbankinn á að auki engar kröfur á hendur Gaumi hf. en fram hefur komið að Landsbanki Íslands hf. eigi slíkar kröfur. Til þess að fyrirbyggja frekari misskilning í þessu máli og öðrum sem upp kunna að koma, hefur NBI hf. óskað eftir því við skilanefnd Landsbanka Íslands hf. að hún taki enn og aftur til góðfúslegrar skoðunar að breyta nafni þrotabúsins. Við stofnun NBI hf. í október 2008 var það ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að NBI hf. héldi vörumerkinu Landsbankinn og ekki stendur annað til en að það verði í notkun hjá bankanum um langa framtíð, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira