Nýjar neysluvísbendingar sýna vöxt í landsframleiðslunni 15. september 2010 07:52
Greining Arion banka segir að nýjustu neysluvísbendingar bendi núi til jákvæðs viðsnúnings á vexti landsframleiðslunnar. Þar á greiningin við nýjar tölur um kortaveltu landsmanna en kortaveltan gefur ágætis vísbendingu um stefnu einkaneyslunnar. „Að okkar mati er hugsanlegt að seinni árshelmingur ársins muni sýna vöxt í einkaneyslu samanborið við 1% samdrátt á þeim fyrri. Fyrir árið í heild er því ekki ólíklegt að einkaneysla muni sýna lítilsháttar vöxt milli ára," segir í Markaðspunktum greiningarinnar. Ennfremur segir að eftir jákvæðar landsframleiðslutölur í upphafi árs sýndi annar ársfjórðungur 2010 merki um áframhaldandi neyslusamdrátt. Þannig skrapp landsframleiðslan saman um rúmlega 8% milli ára sem m.a. má rekja til samdráttar í einkaneyslu, en hún vegur um 50% í landsframleiðslunni í dag. Í raun komu tölurnar ekki á óvart enda var fyrirséð að þegar skammtímaúrræði stjórnvalda yrðu á enda og fáir þættir til að veita neyslusamdrættinum viðspyrnu kæmi bakslag í neysluna. Debet- og kreditkortavelta landsmanna í ágúst jókst um 4,5% að raunvirði milli ára sem er einn mesti vöxtur sem mælst hefur frá hruni. Hugsanlegt er að hér séu áhrif vegna gengisdómsins að spila inn í en frysting á erlendum bílalánum, meðan beðið er eftir að niðurstöðu Hæstaréttar, eykur greiðslugeta heimila um hver mánaðarmót. „Þrátt fyrir að nýjustu vísbendingar um einkaneyslu séu jákvæðar þá gerum við ráð fyrir fremur veikum efnahagsbata á næstu árum og að neyslustigið verði áfram í lágmarki, a.m.k. horft eitt ár fram í tímann," segir í Markaðspunktunum. „Enn ríkir talsverð óvissa um ýmsa þætti er snýr að heimilum, til að mynda er ekki vitað hver skuldastaða heimila er. Þá er óljóst hvaða skattastefnu stjórnvöld muni framfylgja næstu árin. Ólíklegt er að kaupmáttur nái sér almennilega á strik á næstunni enda sennilegt að launahækkunum verði stillt í hóf á meðan atvinnuleysi er hátt. Þrátt fyrir ýmis batamerki á vinnumarkaði er atvinnuleysi enn hátt og verður það líklega áfram næstu misserin."
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira