Verðbólgan heldur áfram að hjaðna hérlendis 18. október 2010 10:37
Verðbólgan hér á landi var 5,1% í september samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofa Evrópusambandsins (e. Eurostat) tekur saman og Hagstofa Íslands birti nú í morgun. Minnkar því verðbólgan um 0,8 prósentustig milli mánaða en hún var 5,9% hér á landi í ágúst samkvæmt vísitölunni. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á þennan mælikvarða hefur verðbólgan hjaðnað umtalsvert síðasta árið en í september í fyrra mældist hún 15,3%. Meginástæða hjöðnunar verðbólgunnar er að áhrif gengislækkunar krónunnar á verðbólgu sem varð í aðdraganda og samhliða hruni bankakerfisins hér á landi á árinu 2008 eru nú nær horfin og tekin eru við áhrif styrkingar krónunnar frá upphafi árs. Í samanburði við önnur ríki Evrópska efnahagssvæðisins (EES) var verðbólgan þriðja mest hér á landi í september. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð sem Ísland trónir ekki á toppnum á þessum lista en eins og kunnugt er þá hafði verðbólgan mælst mest hér á landi allt frá því í ágúst árið 2008. Í september síðastliðnum mældist verðbólgan mest í Rúmeníu, 7,7%, og næstmest á Grikklandi, 5,7%. Verðbólgan eykst nokkuð milli ágúst og september innan ríkja EES, eða úr 2,0% í 2,2%. Aðeins Írland upplifði ástand verðhjöðnunar í september en þar hefur samræmd vísitala lækkað um 1,0% á síðustu tólf mánuðum. Ekki er við öðru að búast en að munurinn á Íslandi og öðrum EES-löndum haldi áfram að fara minnkandi næsta kastið.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira