Viðskipti innlent

Framleiðendur lúxusvara komnir út úr kreppunni

Lúxusvörur seljast sem aldrei fyrr aðeins ári eftir að margir framleiðendur þessara vara römbuðu á barmi gjaldþrots vegna fjármálakreppunnar.

Samkvæmt uppýsingum frá ráðgjafafyrirtækinu Bain & Co hefur söluaukningin á lúxusvörum í heiminum á þessu ári verið mun meiri en búist var við.

Bain & Co reikna með að heildarsala þessara vara í Evrópu í ár muni nema um 170 milljörðum evra eða um 26.000 milljörðum kr. Þetta er 10% aukning miðað við árið í fyrra.

Mikil auking hefur orðið á hagnaði fyrirtækja á borð við Möet Hennessy Louis Wuitton og Burberry en bæði reikna með að hagnaðaraukningin á árinu verði mæld í tveggja stafa prósentutölum.

Í kauphöllinni í París er framgangur lúxusvörufyrirtækja vel merkjanlegur. Þar hafa fyrirtæki á borð við Gucci og Hermés verið í hópi þeirra fyrirtækja sem mest hafa hækkað í ár.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×