Uppboðsmarkaður með gjaldeyri léttir á stöðunni 21. maí 2010 09:59 „Með skipulegum uppboðsmarkaði sem Seðlabankinn hefur eftirlit með myndi forsendan fyrir hinum svokallaða gráa markaði eða aflandsmarkaði með krónur ekki vera til staðar þar sem erlendir bankar myndu notast við uppboðsmarkað," segir Valdimar Ármann.
Valdimar Ármann hagfræðingur hjá hinu óháða fjármálafyrirtæki GAM Management segir að samhliða gjaldeyrishöftum geti uppboðsmarkaður með gjaldeyri verið nytsamlegur til að létta á „óþolinmóðu" fjármagni.„Að auki mun uppboðsmarkaðurinn gefa til kynna hversu mikill þrýstingur er í raun og veru á krónuna og þannig gefa upplýsingar um það hvenær það sé raunverulegur möguleiki að létta gjaldeyrishöftunum," segir Valdimar en sem kunnugt er af fréttum hefur Lilja Mósesdóttir þingmaður Vinstri grænna lagt fram frumvarp um uppboðsmarkað á gjaldeyri.Að sögn Valdimars var einn stærsti ókostur gjaldeyrishaftanna að íslenska krónan fékk ekki að finna botngildi og fullt af fjármagni var læst inni í höftunum sem ellegar hefði keypt sig út á nánast hvaða verði sem var.„Með skipulegum uppboðsmarkaði sem Seðlabankinn hefur eftirlit með myndi forsendan fyrir hinum svokallaða gráa markaði eða aflandsmarkaði með krónur ekki vera til staðar þar sem erlendir bankar myndu notast við uppboðsmarkað. Í raun og veru er þannig búið að gera aflandsmarkað gagnsæan og skipulegan," segir Valdimar.Samkvæmt Valdimar gæti uppboðsmarkaður verið framkvæmdur á eftirfarandi hátt:Tilkynning væri send til innlendra og erlendra banka um að Seðlabanki Íslands muni standa fyrir mánaðarlegum gjaldeyrisuppboðum og að fjöldi þeirra myndi ráðast af niðurstöðum.Ströng skilyrði eru sett fyrir því hver getur tekið þátt í markaðnum til að hindra spákaupmennsku t.a.m. væru það erlendir aðilar sem eiga krónueignir og vilja kaupa gjaldeyri, erlendir aðilar sem eiga gjaldeyri en vilja kaupa krónueignir og innlendir aðilar eins og lífeyrissjóðir sem eiga gjaldeyri en vilja kaupa krónueignir. Seðlabanki Íslands væri ekki útilokaður frá því að taka þátt í uppboðinu ef hann telur hagstætt að selja hluta af gjaldeyrisvaraforðanum.Vegna gjaldeyrishafta er ekki hægt að „taka hringinn" þ.e. kaupa krónur á uppboðsmarkaði og selja þær svo aftur á seðlabankagenginu.Fjárhæðir þurfa að vera háar t.d. ekki undir 5 milljónum evra og mun það tryggja að megnið af flæðinu á almennu seðlabankagengi færist ekki þaðan.Til að finna markaðsverð í uppboðinu er hægt að nota mismunandi aðferðir. Ein aðferð er að nota sömu aðferðir og ýmsar kauphallir (NASDAQ OMX og EUREX) nota í opnunar- og lokunar tilboðum. Þá er miðað við eitt verð sem er það verð sem leiðir af sér mesta mögulega magn viðskipta.Þegar fáir bjóða í uppboðsmarkaðnum eða lágt gengi er boðið þá er ljóst að lítið er eftir af „óþolinmóðu" fjármagni.Þegar búið er að losa „óþolinmóða" fjármagnið er uppboðsmarkaðurinn óþarfur og hefur gegnt sínu hlutverki. Einnig hefur skapast forsenda fyrir því að aflétta gjaldeyrishöftunum í kjölfarið.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira