Jól

Kvenskart frá heitu hjarta: Þorbergur

Þorbergur Halldórsson, gullsmíðakennari. og gullsmiður í G15. Fréttablaðið/Valli
Þorbergur Halldórsson, gullsmíðakennari. og gullsmiður í G15. Fréttablaðið/Valli

Jólagjöf elskenda er oft hinn mesti höfuðverkur og gjarnan sú gjöf sem kostar budduna mest, enda stundum fleygt að demantar séu bestu vinir konunnar.

Því kvíðir mörgum karlinum fyrir að velja og fjárfesta í skartgrip handa sinni heittelskuðu, ekki síst eftir að kreppti að. Skart þarf þó ekki að vera úr gulli og gimsteinum til að konan verði ánægð því persónulegir skartgripir geta líka verið leiðin að hjarta hennar.

Við fengum þrjá gullsmiði til að föndra kvenskart í jólapakkann úr perlum, steinum og vírum frá versluninni Föndru í Kópavogi og útkoman er sannarlega glæsileg og uppörvandi fyrir karlmenn sem vilja gera eitthvað alveg sérstakt handa ástinni sinni.

Þorbergur Halldórsson gullsmiður í G15

„Eingöngu er smíðað úr gulli á verkstæðinu sem ég ólst upp á og því er það virkileg áskorun að prófa að gera skart úr föndur­perlum. Það reyndist síðan vera skemmtilegasta vinna þegar til kastanna kom.

Ég rölti niður í Elliðavog í leit að innblæstri og þar gekk ég fram á frosna hvönn sem ég tók með á verkstæðið og notaði blómin með föndurperlum í eyrnalokka og stilka í hálsmen, en hvort tveggja úðaði ég með silfurlakki. Þetta sýnir að hægt er að nota nánast hvað sem er í skartgripagerð og fallegt er að flétta náttúruskarti saman við perlur og steina föndur­búðanna, rétt eins og skíra gull og silfur.

Konan mín var stór­hrifin þótt hún sé vanari veigameiri skartgripum, og krakkarnir í skólanum upprifnir af útkomunni og þótti góður skóli að sjá skartgripi búna til við þessar forsendur."

G15 er í Súðarvogi 44, Kænuvogsmegin.

Hér fyrir ofan má sjá hálsfesti úr hvítum og bleikum perlum og silfurspreyjuðum hvannarstilkum.

Eyrnalokkar úr hvítum og bleikum perlum og blómakjörnum hvannar húðuðum með silfri.


Tengdar fréttir

Kvenskart frá heitu hjarta: Sigurður Ingi

Hér spreyta þrír gullsmiðir sig á að föndri við kvenskart í jólapakkann úr perlum, steinum og vírum frá versluninni Föndru í Kópavogi og útkoman er sannarlega glæsileg og uppörvandi fyrir karlmenn sem vilja gera eitthvað alveg sérstakt handa ástinni sinni.

Kvenskart frá heitu hjarta: Orri Finn

Hér föndra þrír gullsmiðir kvenskart úr perlum, steinum og vírum frá Föndru í Kópavogi og máttu bæta við eigin efniviði. Útkoman er uppörvandi fyrir þá sem vilja gera eitthvað sérstakt handa ástinni sinni.








×