Jól

Saga Garðars flytur jólalag á panflautu

Tinni Sveinsson skrifar
Saga Garðarsdóttir og Katla Margrét Þorgeirsdóttir stíga á svið í jóladagatali dagsins.
Saga Garðarsdóttir og Katla Margrét Þorgeirsdóttir stíga á svið í jóladagatali dagsins.

Borgarleikhúsið býður landsmönnum öllum upp á veglega jóladagskrá í formi jóladagatals í ár. Á hverjum degi frá 1. til 24. desember verður opnaður gluggi og listamenn leikhússins gleðja með fjölbreyttum atriðum.

Panflautan er vanmetið hljóðfæri

Margir telja að panflautan sé vanmetið hljóðfæri sem njóti ekki alltaf sannmælis. Þetta á sérstaklega við þegar kemur að jólunum og jólastemningunni – en úr því verður nú bætt í jóladagatalinu í dag.

Klippa: Jóla­daga­tal Borgar­leik­hússins - 9. desember

Von er á sögum, söng og tónlist, fróðleik, gríni og gleði á hverjum degi fram að jólum frá Borgarleikhúsinu. Gluggar í Jóladagatali Borgarleikhússins eru birtir daglega hér á Vísi.








×