Staða ríkissjóðs heldur áfram að versna 10. júní 2010 10:17
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins 2010 liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu er handbært fé frá rekstri neikvætt um 11,1 milljarða kr. Tekjur reyndust 4,2 milljörðum kr. minni en í fyrra á meðan gjöldin jukust um 3,5 milljarða kr. Hreinn lánsfjárjöfnuður var neikvæður um 16,4 miljarða kr. sem er 3,9 milljarða kr. verri staða en á sama tíma í fyrra.Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 36,0 milljörðum kr. í apríl og 147,2 milljörðum kr. samtals á fyrstu fjórum mánuðum ársins. Tekjur mánaðarins voru 2,4 milljarða kr. yfir áætlun fjárlaga en samanlagt frá áramótum eru tekjurnar þó 1,4 milljarða kr. eða 0,9% undir áætlun. Ef horft er á skatttekjur eingöngu frá ársbyrjun er útkoman 0,1% yfir áætlun.Skatttekjur og tryggingagjöld námu 33,3 milljörðum kr. í aprílmánuði og 135,3 miljarða kr. samtals í janúar-apríl, sem er 3,4 milljörðum kr. meira en á sama tíma 2009. Staðgreiðsla á tekjuskatti og útsvari nam 47,2 milljörðum kr. samtals í febrúar-apríl og er það 1,6 milljarði kr. meira en á sama tíma í fyrra. Þar af rann sem tekjuskattur í ríkissjóð 22,5 milljarða kr miðað við 20,8 milljarða kr. á sama tíma í fyrra. Hér er um að ræða skil á tekjuskatti og útsvari í staðgreiðslukerfinu af launum fyrstu þriggja mánaða ársins sem eru fyrstu launamánuðirnir eftir kerfisbreytinguna um sl. áramót þegar tekið var upp þriggja þrepa tekjuskattskerfi.Greidd gjöld námu 171,2 milljarða kr. og jukust um 3,5 milljarða kr. frá fyrra ári, eða 2,1%. Milli ára jukust vaxtagjöld ríkissjóðs um 7,2 milljarða kr. Útgjöld til menntamála jukust um 1,3 milljarð kr. þar sem útgjöld til Lánasjóðs íslenskra námsmanna jukust um 1,8 milljarð kr. milli ára. Óregluleg útgjöld jukust um 960 milljónir króna milli ára sem útgjöld vegna ríkisábyrgða skýra að öllu leyti.Útgjöld til löggæslu, réttargæslu og öryggismála aukast um 771 milljón króna milli ára þar sem fjárfesting Landhelgissjóðs í varðskipi skýrir hækkunina að langstærstu leyti. Útgjöld til efnahags- og atvinnumála dragast saman um 4,4 milljarða kr. milli ára þar sem framkvæmdir Vegagerðarinnar skýra 2,5 milljarða kr., flugvellir og flugleiðsöguþjónusta 450 milljónir króna og Fjarskiptasjóður 402 milljónir.Útgjöld til menningar- íþrótta- og trúmála dragast saman um 967 milljónir króna milli ára, útgjöld til almannatrygginga og velferðarmála um 857 milljónir og útgjöld til heilbrigðismála um 838 milljónir króna. Útgjöld til annarra málaflokka breytast minna en þau sem upp hafa verið talin.Hreinn lánsfjárjöfnuður var neikvæður um 16,4 milljarða kr. sem er 3,9 milljarða kr. verri staða en á sama tíma í fyrra. Afborganir af lánum ríkissjóðs námu 72 milljörðum kr. og voru þær vegna innlendra skulda. Aðallega er um að ræða innlausn ríkisbréfa á gjalddaga í mars. Heildarlánsfjárþörf ríkissjóðs var því 88,4 milljarðar kr. Innlendar lántökur námu 62,2 milljarðar kr. þar sem seld voru ríkisbréf fyrir 55,3 milljarðar kr. og verðtryggð ríkisbréf fyrir 13 milljarða kr. Stofn ríkisvíxla lækkaði um 6 milljarða kr. Staða ríkissjóðs í Seðlabanka lækkaði því um tæpa 28,8 milljarða kr. á fyrstu fjórum mánuðum ársins.
Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira