Afnám gjaldeyrishafta skapar óvissu um vaxtalækkanir 8. desember 2010 11:26
Áætlanir um afnám gjaldeyrishafta skapa óvissu um hversu mikið svigrúmið er til skemmri tíma á frekari vaxtalækkunum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Peningastefnunefnar sem birt hefur verið á vefsíðu Seðlabankans. Í yfirlýsingunni segir: „Verðbólga minnkaði áfram í nóvember, eftir töluverða hjöðnun frá því í mars. Tólf mánaða verðbólga var 2,6% í nóvember, eða 1,8% ef áhrif hærri neysluskatta eru frátalin. Hefur 2½% verðbólgumarkmiðinu því verið náð. Hækkun verðlags þjónustu hefur haft mest áhrif á verðbólgu undanfarna tólf mánuði. Einkum hefur verðlag opinberrar þjónustu hækkað skarpt. Gengishækkun krónunnar, lækkandi verðbólgu¬væntingar og slaki í þjóðarbúskapnum styðja áfram við litla og stöðuga verðbólgu. Þjóðhagsreikningar, sem birtir hafa verið frá síðustu vaxtaákvörðun, gefa til kynna að slaki í þjóðarbúskapnum sé heldur meiri en gert var ráð fyrir í nóvemberhefti Peningamála. Hins vegar er rétt að hafa í huga að fyrstu áætlanir þjóðhagsreikninga eru oft háðar töluverðri endurskoðun. Efnahagsbatinn virðist hafa hafist á þriðja ársfjórðungi, í samræmi við nóvemberspána, en virðist vera veikari en spáð var þá. Verðbólga hefur minnkað heldur hraðar en fólst í nóvemberspánni og eru áfram horfur á að hún verði um skeið undir markmiði á næsta ári. Frá fundi peningastefnunefndar í nóvember hefur viðskiptavegin gengisvísitala krónu verið nokkurn veginn stöðug, en gengi hennar hefur hækkað um 1½% gagnvart evru. Eins og vænst var hafa reglubundin kaup Seðlabankans á gjaldeyri, sem hófust 31. ágúst síðastliðinn, ekki haft greinileg áhrif á gengi krónunnar. Gjaldeyrishöftin, þróun viðskiptakjara og annarra þátta sem áhrif hafa á viðskiptajöfnuð, ásamt aðhaldsstigi peningastefnunnar í samanburði við helstu viðskiptalönd halda áfram að styðja við gengi krónunnar. Peningastefnunefndin telur að enn kunni að vera eitthvert svigrúm til áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist og hjaðni verðbólga eins og spáð er. Áætlanir um afnám hafta á fjármagnshreyfingar skapa hins vegar óvissu um hversu mikið svigrúmið er til skemmri tíma. Nefndin er reiðubúin til þess að breyta aðhaldi peningastefnunnar eins og nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla að gengisstöðugleika og í því skyni að tryggja að verðbólga verði nálægt markmiði til lengri tíma litið."
Mest lesið Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Sjá meira