Viðskipti innlent

Eigendur bankanna misnotuðu þá

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Rannsóknarnefndin telur að eigendur allra stóru bankanna þriggja og Straums-Burðaráss hafi fengið óeðlilega mikinn aðgang að lánsfé hjá þessum bönkum í krafti eignarhalds síns. Stærstu skuldarar allra bankana voru eigendur þeirra eða tengdir aðilar.

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis er mjög afdráttarlaus hvað snertir lánveitingar bankanna til eigenda sinna og eru niðurstöðurnar sláandi, en skýrslan virðist staðfesta margar svartsýnustu spár manna.

Rannsóknarnefnd Alþingis telur að rekstur íslensku bankanna hafi um margt einkennst af því að hámarka hag stærri hluthafanna sem stýrðu bönkunum fremur en að reka trausta banka með hagsmuni allra hluthafa í huga. Listar yfir stærstu skuldara bankanna árin 2007 og 2008 varpa skýru ljósi á þetta.

Hjá Glitni var Baugur Group og tengdir aðilar stærsti skuldarinn, en fyrirtækið var stærsti hluthafi bankans í gegnum FL Group. Samkvæmt skýrslunni voru félög tengd Björgólfi Thor Björgólfssyni næst stærsti skuldari Glitnis.

Hjá Kaupþingi eru nöfnin kunnugleg. Stærstu lántakendur eru eigendur eða tengdir aðilar. Efstur á þeim lista er Robert Tchenguiz, fyrrverandi stjórnarmaður í Exista, stærsta hluthafa bankans og náinn viðskiptafélagi stærstu eigenda Exista, þeirra Ágústs og Lýðs Guðmundssona.

Hjá Landsbankanum er hópur Baugs Group stærstur en þar á eftir koma hópar Björgólfs Guðmundssonar og sonar hans Björgólfs Thors, en þeir voru stærstu hluthafar Landsbankans.

Eins og sést á þessum töflum var Baugur Group ýmist stærsti eða næststærsti lántakandi allra stóru bankanna þriggja árin 2007 og 2008.

Í skýrslunni kemur fram að eigendur bankanna virðast hafa beitt ráðandi stöðu sinni í þeim til þess að hafa áhrif á lánveitingar til félaga sem þeim tengdust. Rannsóknarnefndin telur að eigendur allra stóru bankanna þriggja og Straums-Burðaráss hafi fengið óeðlilega mikinn aðgang að lánsfé hjá þessum bönkum að því er virðist í krafti eignarhalds síns.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×