Umfangsmiklar skattahækkanir ákveðnar Sigríður Mogensen skrifar 19. desember 2010 18:30
Fjármagnstekjuskattur og tekjuskattur fyrirtækja hækkar í 20% og erfðafjárskattur tvöfaldast, en lög þessa efnis voru samþykkt á Alþingi í gær. Alls er talið að skattahækkanir skili ríkissjóði rúmum 10 milljörðum á næsta ári. Umfangsmiklar skattahækkanir voru samþykktar á Alþingi í gær. Sérstakur skattur verður lagður á fjármálafyrirtæki. Markmiðið með bankaskatti er tvíþætt. Annars vegar að bankarnir taki þátt í að mæta þeim mikla kostnaði sem fallið hefur á ríkissjóð vegna hruns fjármálakerfisins. Hins vegar að draga úr áhættusækni fjármálafyrirtækja en skatturinn er lagður á skuldir banka. Fjármagnstekjuskattur einstaklinga hækkar úr 18% í 20% en talið er að sú hækkun skili einum og hálfum milljarði í ríkiskassann. Tekjuskattur fyrirtækja hækkar úr 18 í 20 prósent og auðlegðarskatturinn sem kynntur var til sögunnar í fyrra hækkar úr 1,25% í eitt og hálft prósentustig. Samhliða því lækka fríeignamörkin úr 90 milljónum í 75 hjá einstaklingum og úr 120 í 100 milljónir hjá hjónum. Þetta á að skila 1,5 milljarði. Erfðafjárskattur hækkar úr 5 í 10 prósent. Tóbaksgjald hækkar um 3%. Þá verður lagt á sérstakt vörugjald í komuverslunum fríhafna en talið er að það muni skila 600 milljónum. Kolefnisgjald hækkar úr 50 í 75% og heimildir til útgreiðslu séreignasparnaðar verða rýmkaðar en þessi aðgerð á að skila 3 milljörðum. Samtals er áætlað að skattahækkanir skili rúmum 10 milljörðum í ríkiskassann á næsta ári. Til samanburðar er vert að geta þess að skorið er niður um rúma 30 milljarða króna. Talsmenn atvinnulífsins gagnrýndu þessar aðgerðir á fundum efnahags- og skattanefndar og telja að þær hafi neikvæð áhrif á endurreisnina. Erfðafjárskattur og auðlegðarskattur væru ósanngjarnir. Efnahags- og skattanefnd ræddi einnig hvort auðlegðarskatturinn gæti leitt til landflótta efnaðs fólks og jafnvel skilnaðar hjóna í því skyni að komast undan skattheimtunni.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira