Umfjöllun: Snæfell sótti bæði stigin í Ásgarð Elvar Geir Magnússon skrifar 24. janúar 2010 21:24 Ingi Steinþórsson, þjálfari Snæfells.
Snæfell og Stjarnan hafa bæði 20 stig í Iceland Express deildinni eftir sigur fyrrnefnda liðsins í Garðabæ í kvöld, 87-93. Leikurinn var jafn og spennandi eins og reiknað var með og úrslitin réðust ekki fyrr en í blálokin. Stjörnumenn voru betri í blábyrjun leiksins og náðu fljótlega ágætri forystu. Snæfellingar fundu betri takt í leik sinn hægt og rólega en voru tveimur stigum undir eftir fyrsta leikhluta 23-21. Jón Ólafur Jónsson var veikur og sást það greinilega á spilamennsku hans. Þeir komust yfir í fyrsta sinn þegar rúm mínúta var eftir af öðrum leikhluta og fóru til búningsherbergja með þriggja stiga forystu, staðan 43-46 í hálfleik. Hart var barist í þriðja leikhlutanum og liðin skiptust á að hafa forystuna. Heimamenn leiddu með sjö stigum fyrir lokafjórðunginn. Á lokasprettinum reyndust Snæfellingar hinsvegar sterkari og tilraunir Stjörnunnar til að jafna í lokin gengu ekki. Úrslitin réðust þegar Sean Burton setti bæði vítaskot sín niður þegar sex sekúndur voru eftir. Spennan var mikil en gestirnir glöddust mikið þegar leiktíminn rann út. Vel var mætt í Ásgarð og stemningin prýðileg. Lykilmenn Snæfells stóðu allir fyrir sínu í kvöld og hafði það mikið að segja. Þá var einnig gaman að sjá Emil Þór Jóhannsson sem steig upp og átti skínandi góðan leik. Stjörnuliðið var hinsvegar ekki að ná eins vel saman og oftast í vetur. Stjarnan - Snæfell 87-93 Stigahæstir hjá Stjörnunni: Justin Shouse 22, Jovan Zdravevski 20, Kjartan Kjartansson 13, Fannar Helgason 12. Stigahæstir hjá Snæfelli: Sean Burton 22, Emil Þór Jóhannsson 21, Hlynur Bæringsson 19, Sigurður Þorvaldsson 18.
Dominos-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjá meira