Eigandi Morgunblaðsins yfirheyrður vegna Glitnis-málsins Þorbjörn Þórðarson skrifar 29. nóvember 2010 19:01
Guðbjörg Matthíasdóttir, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, Óskar Magnússon, og Katrín Pétursdóttir hafa öll verið yfirheyrð af sérstökum saksóknara í tengslum við rannsókn á Glitnis-málinu. Þau gáfu öll skýrslu sem vitni og eru ekki grunuð um refsiverða háttsemi. Um miðjan þennan mánuð fóru fram húsleitir og skýrslutökur í tengslum við rannsóknir embættis sérstaks saksóknara á lánveitingum Glitnis banka og viðskiptum með hlutabréf. Eitt af þeim fimm málum sem eru til rannsóknar og snerta Glitni eru kaup Glitnis á alls tæplega 40 prósenta hlut í Tryggingamiðstöðinni í september 2007 en seljandi bréfanna var Kristinn ehf. eignarhaldsfélag Guðbjargar Matthíasdóttur og fleiri félög en söluandvirðið var um 20 milljarðar króna. Eins og kom í ljós síðar var Glitnir að kaupa bréfin fyrir hönd FL Group. Fréttastofa hefur fengið staðfest að meðal þeirra sem hafa verið yfirheyrð í tengslum við rannsóknina eru Guðbjörg Matthíasdóttir, stærsti hluthafi Árvakurs útgáfufélags Morgunblaðsins og fyrrverandi stjórnarmaður í Tryggingamiðstöðinni, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, fyrrverandi stjórnarmaður í sama fyrirtæki, Sigurbjörn Magnússon, lögmaður Guðbjargar, Óskar Magnússon, fyrrverandi forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar og núverandi útgefandi Morgunblaðsins og Katrín Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Lýsis hf. Yfirheyrð í húsakynnum ríkislögreglustjóra Öll hafa þau fengið réttarstöðu vitnis og eru ekki grunuð um refsiverða háttsemi. Sigurbjörn Magnússon staðfesti í samtali við fréttastofu í dag að hann, Guðbjörg og Gunnlaugur Sævar hefðu öll verið yfirheyrð í húsakynnum ríkislögreglustjóra. Sagði hann að um stuttar vitnaskýrslur hefði verið að ræða og að þáttur Guðbjargar og seljendanna í þessu tilviki væri ekki til rannsóknar. Þær upplýsingar fengust í dag hjá embætti sérstaks saksóknara að í þeim tilvikum sem vitni og sakborningar gæfu skýrslu í öðrum húsakynnum en hjá embættinu væri það vegna plássleysis. Það sama gilti um alla í þessum efnum og menn gætu ekki samið um hvar þeir gæfu skýrslu. Fjöldinn allur af fyrrverandi starfsmönnum Glitnis hefur verið yfirheyrður. M.a Lárus Welding fyrrverandi forstjóri, Guðný Sigurðardóttir, sem var á lánasviði Glitnis og Bjarni Jóhannsson, sem var viðskiptastjóri hjá bankanum. Þá kom fram í Fréttablaðinu á laugardag að Jón Ásgeir Jóhannesson, sem var ekki í stjórn en var stærsti hluthafi bankans í gegnum FL Group, hefði komið í skýrslutöku í síðustu viku, án lögmanns.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira