Þjóðverjar gætu eignast Byr en Íslandsbanki bætist í hóp áhugasamra Þorbjörn Þórðarson skrifar 9. október 2010 18:45
Ekki er útilokað er þýskur banki verði stærsti hluthafi Byrs, en viðræður um uppgjör á eignum hans hafa tafist. Margir renna hýru auga til Byrs, þar á meðal bankastjóri Landsbankans, sem vill sameina Byr og Landsbankann. Þá hefur Íslandsbanki einnig áhuga. Byr sparisjóður uppfyllti ekki kröfur fyrir stofnfjárframlagi ríkissjóðs eftir að ráðist var í endurskipulagningu sparisjóðsins síðastliðinn vetur. Stjórn Byrs skilaði því starfsleyfinu til FME í apríl síðastliðnum. Í kjölfarið var stofnað hlutafélagið Byr hf. til að halda utan um reksturinn og voru innstæður og lán viðskiptamanna færðar þangað. Viðræður hafa nú staðið yfir milli slitastjórnar Byrs, fjármálaráðuneytisins og erlendra kröfuhafa Byrs um verð þeirra eigna sem færðar voru yfir til hins nýja hlutafélags Byrs. Embættismaður í fjármálaráðuneytinu sagði að ekki lægi enn fyrir samkomulag um verðmæti eignanna sem flutt voru yfir til hins nýja hlutafélags. Þegar það samkomulag lægi fyrir yrði Byr annað hvort seldur hér innanlands í heilu lagi, eða skipt milli kröfuhafa gamla sparisjóðsins. Stærsti kröfuhafi gamla Byrs er þýski bankinn Bayerische Landesbank. Þá eiga íslenskir lífeyrissjóðir stórar kröfur. PricewaterhouseCoopers vann verðmat á eignum Byrs sparisjóðs í apríl 2009 og aftur í nóvember sama ár. Eva B. Helgadóttir, formaður slitastjórnar Byrs, sagði að ekki væri ágreiningur um verðmæti þessara eigna, en hún vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti. Jón Finnbogason, forstjóri Byrs hf., tók undir þetta og sagðist ekki kannast við að það væri ágreiningur um verðmæti eignanna. „Það hefur ítrekað verið farið yfir verðmatið og því er athyglisvert ef menn eru að halda þessu fram," segir Jón. Erlendir kröfuhafar Byrs sparisjóðs, sem fór í þrot í vor, höfðu ekki áhuga á því að fjármagna Byr hf. sem starfandi banka. Mikill áhugi er hins vegar á rekstri útibúanetsins enda ljóst að mikil verðmæti felast í því og því líklegt að kröfuhafarnir fái kröfur sínar greiddar með sölu eigna. Margir renna því hýru auga til Byrs, en Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, vill sameina Byr Landsbankanum og nefndi þessa hugmynd í viðtali við Viðskiptablaðið. Þá er einnig áhugi á Byr hjá Íslandsbanka, samkvæmt heimildum fréttastofu. Engar formlegar viðræður hafa þó hafist milli Byrs hf. og áhugasamra fjármálafyrirtækja. Það sem menn eru sérstaklega spenntir fyrir er dótturfélagið Teris, sem er þjónustukerfi sparisjóðanna, en Byr hf. á 36 prósenta hlut í því. Landsbankinn telur sig geta tekið kerfið yfir og þjónustað alla sparisjóðina og það er m.a á þessari forsendu sem Steinþór vill sameina Byr og Landsbankann. Jón Finnbogason, forstjóri Byrs, sagði að breytt eignarhald Byrs myndi ekki hafa nein áhrif á viðskiptavini. Þeirra hagsmunir hefðu verið tryggðir með lögum, auk þess sem innstæður væru tryggðar í samræmi við fyrri yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar. „Áhugi annarra fjármálafyrirtækja á Byr kemur mér ekki á óvart" segir Jón. Hann segir að um traust fyrirtæki sé að ræða með góðan viðskiptamannahóp og öflugt starfsfólk. Útibú Byrs í Hafnarfirði, áður útibú SPH, hefur mikla þýðingu fyrir marga Hafnfirðinga og hefur það verið byggt upp á grundvelli persónulegrar þjónustu og sambands við sparifjáreigendur og aðra viðskiptavini. Tólf af átján starfsmönnum útibús Byrs í Hafnarfirði hafa starfað við fjármálaþjónustu í tuttugu ár eða lengur.
Mest lesið Bein útsending: Heinemann sviptir hulunni af breytingum á fríhöfninni Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Atvinnulíf Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Samstarf Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Samstarf Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Heinemann sviptir hulunni af breytingum á fríhöfninni Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Sjá meira