Viðskipti innlent

Gjaldeyrisforðinn minnkaði um 59 milljarða í september

Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 487,2 milljarða kr. í lok september og lækkaði um 59 milljarða kr. milli mánaða. Erlendur gjaldeyrir minnkaði um 58,3 milljarða kr. og aðrar eignir lækkuðu samtals um 761 milljónir kr. í mánuðinum.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Í efnahagsreikingi bankans kemur fram að bundar gjaldeyrisinnistæður minnkuðu um tæpa 60 milljarða kr. og skýrir það lækkun gjaldeyrisforðans. Nettóstaða forðans minnkaði mun minni eða um rúma 7 milljarða kr. og stendur í tæpum 110 milljörðum kr.

Erlendar eignir Seðlabanka Íslands námu 488,1 milljarða kr. í lok sept. samanborið við 547,2 milljarða kr. í lok ágúst.

Erlendar skuldir Seðlabanka Íslands námu 241,2 milljörðum kr. í september samanborið við 239,9 milljarða kr. í lok ágúst.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×