Vinna áhættumat vegna hugsanlegs greiðsluþrots Höskuldur Kári Schram skrifar 5. apríl 2010 18:39
Reykjavíkurborg vinnur nú áhættumat vegna áhrifa hugsanlegs greiðslufalls Orkuveitunnar á fjárhag borgarinnar. Miðað við núverandi stöðu er talið að borgin þurfi að eiga handbæra tólf milljarða króna. Hverfandi líkur eru á greiðslufalli segir Orkuveitan. Vinna við áhættumatið hófst seint á síðasta ári eða um það leyti sem lánshæfismat Orkuveitu Reykjavíkur var fært niður í ruslflokk. Borgarráð hefur fundað að minnsta kosti tvisvar ófomlega um málið síðast á miðvikudag í síðustu viku en á þann fund mættu einnig fulltrúar orkuveitunnar og fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Engar fundargerðir hafa verið skrifaðar og áhættumati sjálft mun ekki verða kynnt almenningi samkvæmt heimildum fréttastofu. Orkuveita Reykjavíkur tapaði tveimur og hálfum milljarði króna á síðasta ári og 73 milljörðum árið 2008. Skuldir félagsins nema nú um 240 milljörðum króna en félagið er að mestu fjármagnað í erlendri mynt. Tekjur eru hins vegar að mestu í íslenskum krónum. Áhættumatið gengur meðal annars út á að meta lausafjársstöðu og greiðslugetu félagsins. Miðað við núverandi stöðu er talið að borgin þurfi að eiga handbæra átta til tólf milljarða króna til að styðja við félagið - komi til greiðslufalls. Einn borgarfulltrúi sem fréttastofa talið við sagði að menn hefðu verulega áhyggjur af stöðunni en staða Orkuveitunnar getur haft veruleg áhrif á lánshæfismat Reykjavíkurborgar. Guðlaugur Gylfi Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, sagði í samtali við fréttastofu hverfandi líkur á því að félagið lendi í greiðslufalli. Orkuveitan væri í góðu samkomulagi við sína lánadrottna og undirliggjandi rekstur sterkur. Fátt bendi því til þess að orkuveitan geti ekki staðið við sínar skuldbindingar.
Mest lesið Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Fleiri fréttir Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Sjá meira