Reikningurinn líklega ekki í eigu Fl Group 4. maí 2010 12:21 Ragnhildur hefði átt að geta fengið allar upplýsingar um reikninga í eigu FL Group.
Allt bendir til að reikningurinn í Lúxemborg, sem féð frá FL Group fór inn á árið 2005, hafi ekki verið í eigu FL Group. Málið er til rannsóknar, en fyrrverandi forstjóri félagsins hætti meðal annars vegna þessarar grunsamlegu millifærslu. Um það leyti sem Ragnhildur Geirsdóttir tók við sem forstjóri FL Group sumarið 2005 fékk hún vitneskju um að Hannes Smárason, þáverandi stjórnaformaður félagsins, hafi í apríl sama ár látið millifæra 3 milljarða króna af reikningum FL Group til Kaupþings í Lúxemborg. Ragnhildur sagði í viðtali á Stöð 2 fyrir skömmu að bankinn í Lúx hafi ítrekað neitað að gefa henni eða öðrum stjórnendum FL Group upplýsingar um peningana og borið við bankaleynd. Þetta er ein af ástæðum þess að hún lét af störfum sem forstjóri félagsins, að eigin sögn. Morgunblaðið bendir á það í dag að reglur um bankaleynd í Lúxemborg séu í stórum dráttum svipaðar reglum hér á landi. Ragnhildur hefði því átt að geta fengið allar upplýsingar um reikninga í eigu FL Group. Af þessu megi ráða að peningurinn hafi verið lagður inn á reikning í eigu einhvers annars fyrirtækis eða einstaklings. Ragnhildur sagði í viðtali fyrir stuttu að hún hefði ekki sannanir fyrir því hvert peningurinn fór en hún hafi séð úprentun úr Excel skjali frá Kaupþingi þar sem fram komu vísbendingar um að peningarnir hefðu á einhverjum tímapunkti verið millifærðir á Fons. Málið er til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra. Ekki náðist í Ragnhildi fyrir hádegisfréttir.
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira