Skuldatryggingaálag Íslands heldur áfram að lækka 22. júní 2010 12:07
Skuldatryggingaálag ríkissjóðs Íslands hefur lækkað nokkuð á síðustu dögum. Í lok dagsins í gær stóð álagið til 5 ára í 317 punktum (3,17%) sem er 20 punktum lægra en það var um miðja síðustu viku.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að gildi skuldatryggingaálags ríkissjóðs sé jafnframt mun lægra nú en það hefur að jafnaði verið það sem af er þessu ári, en að meðaltali hefur það verið um 440 punktar frá áramótum talið.Þó er hér ekki um almenna lækkun á skuldatryggingaálagi á mörkuðum að ræða, og í raun er þessu í flestum tilfellum öfugt farið þannig að áhættuálagið á mörgum öðrum ríkjum hefur verið að hækka á sama tíma og álagið á íslenska ríkið hefur lækkað.Meðaláhættuálag á ríki í Vestur Evrópu var í gær 157 punktar en í ársbyrjun var það rétt undir 100 punktum. Það ætti ekki að koma á óvart að þessa hækkun álagsins megi að mestum hluta rekja til Grikklands, Portúgals, Spánar og Írlands enda hafa fá ríki fengið jafn mikla umfjöllun í fjölmiðlum um stöðu efnahagsmála, og þá neikvæða, en einmitt þau.Á þetta sérstaklega við um gríska ríkið en í lok dags í gær stóð skuldatryggingaálag þess í 825 punktum sem er rúmum 540 punktum hærra en það var í byrjun þessa árs. Í þessum samanburði, þ.e. á meðal ríkja Vestur Evrópu, hefur álagið hækkað næstmest á portúgalska ríkið. Í byrjun árs var það rétt rúmir 90 punktar en í lok dags í gær stóð það í 283 punktum. Á sama tíma hefur álagið á Spán hækkað um 105 punkta (þ.e. úr 114 í 219 punkta) og álagið á Írland um 88 punkta (þ.e. úr 158 í 246 punkta).Á heildina litið hefur í raun áhættuálagið lækkað mest á þessu tiltekna tímabili á íslenska ríkið af öllum ríkjum Vestur Evrópu og nemur punktalækkunin 95 punktum. Þrátt fyrir þessa þróun er skuldatryggingaálag á íslenska ríkið enn hið annað hæsta á meðal þeirra ríkja Vestur-Evrópu sem seldar eru skuldatryggingar fyrir.
Mest lesið „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira