Bankarnir ákváðu kaupin 10. september 2010 06:30 Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segist ekki hafa ákveðið kaupin. Mynd/ Heiða. „
Ég tók enga ákvörðun um það ásamt Björgvin [innskot blm: G. Sigurðssyni, þá viðskiptaráðherra], að kaupa þessi skuldabréf," segir Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Hann bendir á að í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis komi skýrt fram að bráðabirgðastjórnir nýju bankanna hafi ákveðið að kaupa eignir peningamarkaðssjóða rekstrarfélaga þeirra með hliðsjón af verðmati óháðra endurskoðenda. Líkt og greint var frá í fyrradag rannsakar Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, kaup bankanna á eignum sjóða þeirra. Í tilkynningu ESA kemur fram að íslensk stjórnvöld hafi ekki sýnt frá að bankarnir hafi tekið sjálfstæðar ákvarðanir um kaupin. Stjórnvöld kunni að hafa stýrt ferlinu. Tildrög málsins eru þau að viðskiptavinir peningamarkaðssjóðanna voru ósáttir við neyðarlögin sem tóku gildi 7. október 2008. Þau tryggðu innstæður í bönkum en ekki hlutdeildarskírteini í verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum, sem flokkast til áhættufjárfestinga. Viðskiptaráðherra sagði á blaðamannafundi 8. október að reynt yrði að tryggja inneign í sjóðunum. Nýja Kaupþing, Nýi Glitnir og Nýi Landsbankinn keyptu skuldabréf úr peningamarkaðssjóðum bankanna fyrir 83,6 milljarða króna í lok október. Útgefendur bréfanna eru flestir gjaldþrota eða í nauðasamningum í dag og skuldabréf verðlaus eða verðlítil. Þá má ætla að tap bankanna sjálfra vegna kaupanna sé í kringum sextíu milljarða króna. Stærstur hluti tapsins fellur á Landsbankann, 38 milljarðar króna. Áætlað tap Íslandsbanka nemur tólf milljörðum og Arion banka 5,7. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf Miðeind festir kaup á Snöru Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Atvinnulíf Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Viðskipti innlent Tókst ekki að sýna fram á galla og situr uppi með körfuboltaskóna Neytendur Fleiri fréttir Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Hrefna stýrir Attentus SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Sjá meira