Taprekstur hins opinbera tæpir 150 milljarðar í fyrra 10. september 2010 09:03
Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 149 milljarða króna árið 2009, eða sem nemur 9,9% af landsframleiðslu og 24,3% af tekjum þess. Til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 13,5% af landsframleiðslu 2008 en jákvæð um 5,4% árið 2007. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar þar sem birt hhafa verið Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera árið 2009. Án 192 milljarða króna skuldayfirtöku ríkissjóðs var tekjuhalli hins opinbera 8 milljarðar króna 2008 eða 0,6% af landsframleiðslu. Þessi óhagstæða þróun frá 2008 skýrist fyrst og fremst af miklum samdrætti í hagkerfinu, en hagvöxtur var neikvæður um 6,8% árið 2009, ásamt auknum útgjöldum vegna mikillar skuldsetningar og aukins atvinnuleysis. Skatttekjur drógust saman um 41 milljarð króna á milli ára á sama tíma og vaxtagjöldin jukust um 49 milljarða króna, félagslegar tilfærslur til heimilanna um 32 milljarða og samneyslan um 27 milljarðar króna, en hún dróst saman um 1,7% að magni til á árinu. Heildartekjur hins opinbera námu 614 milljörðum króna 2009 og lækkuðu um rúmlega 39 milljarða króna milli ára eða 6%. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 40,9% samanborið við 44,2% árið 2008 og 47,9% árið 2007, en fara þarf aftur til ársins 1998 til finna lægra hlutfall af landsframleiðslu. Útgjöld hins opinbera voru rúmlega 763 milljarðar króna árið 2009 og lækkuðu um 90 milljarða króna milli ára, eða úr 57,8% af landsframleiðslu 2008 í 50,9% 2009. Að 192 milljarða króna skuldayfirtöku ríkissjóðs 2008 undanskilinni hækkuðu útgjöld hins opinbera um 102 milljarða króna milli ára. Af heildarútgjöldum hins opinbera 2009 runnu 55,3% til fræðslu-, heilbrigðis- og velferðarmála eða 422 milljarðar króna. Til vaxtagreiðslna, sem jukust verulega á árinu, runnu um 99 milljarðar króna eða 12,9% útgjalda hins opinbera og til efnahags- og atvinnumála 90 milljarðar króna eða 11,8% útgjaldanna, en þar af fóru 46 milljarðar til samgöngumála og 15 milljarðar til landbúnaðarmála. Samtals runnu því 80% útgjalda hins opinbera til þessara málaflokka. Hrein peningaleg eign hins opinbera, þ.e. peningaleg eign umfram skuldir, var neikvæð um 597 milljarða króna í árslok 2009, eða sem svarar 39,8% af landsframleiðslu. Hún versnaði um 212 milljarð króna milli ára eða 14,1% af landsframleiðslu. Peningalegar eignir hins opinbera námu 1.197 milljörðum króna í árslok 2009 (79,8% af landsframleiðslu) og heildarskuldir 1.794 milljörðum króna (119,5% af landsframleiðslu). Fara þarf aftur til ársins 1998 til að finna lakari eignastöðu en á því ári var hrein peningaleg eign hins opinbera neikvæð um 42,6% af landsframleiðslu.
Mest lesið Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Origo kaupir Maven Viðskipti innlent Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Viðskipti innlent Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Fleiri fréttir Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Sjá meira