Lítil batamerki í verslun fyrir utan raftækjaverslun 16. nóvember 2010 11:31
Þrátt fyrir að vísbendingar um t.d. kortaveltu landsmanna bendi nú til þess að einkaneysla sé að hrökkva í gang á nýjan leik segja hagtölur um verslun aðra sögu. Enn sem komið er sjást ekki batamerki í veltu í verslunum að raftækjaverslun undanskilinni, en velta í raftækjaverslunum hefur nú aukist mikið undanfarna 5 mánuði. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að verslun með dagvöru, áfengi, föt, skó, húsgögn og rúm er hinsvegar enn að dragast saman þegar borið er saman við sama mánuð fyrir ári síðan á föstu verðlagi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tölum um veltu í smásöluverslun í októbermánuði sem Rannsóknarsetur verslunarinnar birti í lok síðustu viku. Frá sama mánuði fyrra árs dróst velta í dagvöruverslun saman um 0,8% á föstu verðlagi. Þrátt fyrir samdrátt er þetta engu að síður mun minni samdráttur en verið hefur undanfarin misseri. Fyrir ári síðan nam t.d. samdráttur í dagvöruverslun á þennan mælikvarða 4%. Þá hefur velta í áfengisverslun dregist saman um 8,3% í október borið saman við sama mánuð fyrra árs á föstu verðlagi, en fyrir ári síðan nam samdráttur í sölu áfengis 25% á þennan mælikvarða. Frá því um mitt þetta ár hefur veltan í dagvöruverslun verið nokkuð stöðug. Velta í áfengisverslunum heldur hinsvegar áfram að dragast saman og hefur nú dregist saman um 35% að raunvirði frá því fyrir hrun. Má gera því skóna að stærri hluti þess áfengis sem landsmenn neyta sé nú fenginn eftir öðrum leiðum en úr verslunum ÁTVR, miðað við það sem var fyrir hrun., s.s. með heimabruggun, landakaupum eða smygli, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Sjá meira