Viðskipti innlent

Nægjanlegur gjaldeyrisforði fyrir afnámi hafta

Greining Íslandsbanka segir að komi allur gjaldeyrinn í höfn sem gert er ráð fyrir við þriðju endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins styrkist gjaldeyrisforði Seðlabankans um 620 milljónir evra eða 96 milljarða kr. Verður forðinn þá 2,3 milljarðar evra að frádregnum skammtímaskuldbindingum.

Seðlabankinn telur það nægjanlegan forða til að hægt sé að hefja afnám gjaldeyrishafta en það kom fram við síðustu vaxtaákvörðun bankans fyrir hálfum mánuði síðan og í ræðu Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á aðalfundi samtaka fiskvinnslustöðva í síðustu viku.

Greining fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að fulltrúar AGS virðast vera á sama máli, en Murilo Portugal aðstoðar framkvæmdastjóri AGS segir í tilkynningu sem gefin var út í gær í tengslum við endurskoðunina að styrking gjaldeyrisforðans sé forgangsatriði þar sem hún undirbúi jarðveginn fyrir afnámi gjaldeyrishaftanna.

Þá sagði Mark Flanagan, formaður sendinefndar AGS á Íslandi, í fréttum í gær að fyrsta skrefið í afnámi haftanna verði líklega stigið á næstu mánuðum þar sem skilyrði um nægjanlegan forða sé nú uppfyllt, en hann leggur áherslu á að það verði stigið varlega til jarðar í þeim efnum.

Nægur gjaldeyrisforði er þó ekki eina skilyrðið sem þarf að uppfylla áður en afnám haftanna getur hafist.

Mark Flanagan minnti á að stöðugleiki fjármálakerfisins þyrfti einnig að vera tryggður, sem er í takti við það sem Seðlabankastjóri sagði í síðustu viku á fyrrnefndum aðalfundi samtaka fiskvinnslustöðva en ræðan var birt á vef Seðlabankans í gær.

Í ræðunni segir Már að þrátt fyrir að skilyrðið um nægjanlegan gjaldeyrisforða sé uppfyllt sé það misskilningur ef einhver heldur að tíminn í þessu sambandi sé talinn í vikum fremur en mánuðum. Hann segir að bæði taki það tíma að fá gjaldeyrinn í hús eftir þriðju endurskoðunina og að líklega verði ekki hægt að kveða upp úr um heilsufar bankanna gagnvart afnámi hafta fyrr en undir lok nóvember.

Már segir hins vegar að næstu skrefi í afnámi haftanna færist þó sífellt nær í tíma, að því gefnu að ekkert óvænt komi upp á, og að undirbúningurinn sé í gangi innan Seðlabankans.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×