Nýsköpun: Íslendingar eftirbátar nágranna sinna 14. september 2010 08:46 Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Ísland mælist í einu af neðstu sætunum hvað varðar nýsköpun þegar kemur að samanburði við hin Norðurlöndin. Norræna nýsköpunarvogin, sem nýlega var gefin út af Norrænu ráðherranefndinni leiðir þetta í ljós. Í tilkynningu frá nefndinni er bent á að yfirleitt komi Ísland vel út úr alþjóðlegum samanburði á frumkvöðlastarfsemi og því komi niðurstöðurnar nokkuð á óvart. Í skýrslunni er í fyrsta sinn bornar saman aðstæður norrænna frumkvöðla. Danmörk og Finnland skipa efstu sætin, Svíþjóð er á miðjum lista og Noregur rekur lestina. Ísland er í góðri stöðu hvað umgjörð um frumkvöðlastarfsemi varðar, en lakari þegar litið er til þess að stofna nýtt fyrirtæki og koma því í góðan rekstur. Ástæðan fyrir því að Ísland kemur venjulega vel út í alþjóðlegum könnunum á frumkvöðlastarfi er að oft byggja þær á persónulegu mati, segir einn af höfundum skýrslunnar. Norræna nýsköpunarvogin byggir hins vegar á fjölmörgum hlutlægum þáttum, eins og fjölda nýrra fyrirtækja og hvernig þau standa sig í samkeppni. En Norðurlöndin standa sig ekki vel í samanburði við t.d. Bandaríkin , sérstaklega þegar litið er til vaxtar fyrirtækja, hin mörgu nýju fyrirtæki ná með öðrum orðum ekki að festa sig í sessi. „Mörg ný fyrirtæki eru stofnuð á Norðurlöndum, sem bendir til þess að svæðið hafi leyst vandann við að koma þeim á fót. En fjöldi nýrra fyrirtækja endurspeglast ekki í miklum vexti og norrænu ríkin njóta því ekki ávaxta þess að stofnað er til margra nýrra fyrirtækja", er bent á í skýrslunni. Þá segir að það myndi gagnast norrænu ríkjunum ef þau efldu samstarf um nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi til þess að geta betur tekist á við úrlausnarefni hnattvæðingarinnar, segir í niðurstöðu skýrslunnar. Norræna nýsköpunarvogin staðfestir að ef við ætlum að standa okkur í alþjóðlegri samkeppni, þá verðum við að vinna miklu betur saman á Norðurlöndum, segir Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, í tilefni útgáfunnar. Ef litið er til allra þátta þá eru Danir Norðurlandameistarar í frumkvöðlastarfi, þrátt fyrir að þeir eigi erfitt með að laða að erlent vinnuafl. Finnar eru í öðru sæti, sérstaklega vegna góðrar umgjarðar og aðstæðna um frumkvöðlastarf. Norðmenn eru í neðsta sæti, þrátt fyrir að hafa greiðastan aðgang að fjármagni og Svíar eru á miðjum lista. Íslendingar, sem venjulega koma vel út í samanburði á frumkvöðlastarfi, koma ekki vel út úr þessari rannsókn, þrátt fyrir hagstæðar aðstæður og umgjörð. Þeir reka lestina þegar litið er til vaxtar og fjölda nýrra fyrirtækja. Í Svíþjóð og Finnlandi eru það aðallega stífar vinnumarkaðsreglur sem hefta framþróun, samkvæmt skýrslunni.
Mest lesið Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Atvinnulíf Pipar/TBWA með flesta Lúðra Viðskipti innlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Samstarf Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Viðskipti innlent Skipti ekki máli hvaðan olían er Viðskipti innlent Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Samstarf Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Neytendur Fleiri fréttir Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Sjá meira