Sektuð um 405 milljónir fyrir brot á samkeppnislögum Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. desember 2010 14:22 Bónus er þekktasta eign Haga
Samkeppniseftirlitið mun sekta Haga og sex kjötvinnslufyrirtæki um samtals 405 milljónir króna fyrir brot á samkeppnislögum. Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að fyrirtækin hefðu gerst sek um samkeppnishamlandi samvinnu um ferð með tvíhliða samningum eða samstilltum aðgerðum í tengslum við smásöluverðlagningu á kjöti og unnum kjötvörum sem kjötvinnslurnar höfðu verðmerkt fyrir Haga. Eftir að fyrirtækjunum var kynnt frumniðurstaða Samkeppniseftirlitsins í málinu sneru þau sér hvert í sínu lagi til Samkeppniseftirlitsins og óskuðu eftir því að ljúka málinu með sátt. Á þeim grundvelli nýtti Samkeppniseftirlitið heimild samkeppnislaga og gerði sátt við fyrirtækin. Í þeim felst m.a. að fyrirtækin viðurkenna brot á 10. grein samkeppnislaga og greiða sekt vegna þeirra. · 27. september sl. var gerð sátt við Haga. Greiða Hagar 270 m.kr. í stjórnvaldssekt. · 1. október var gerð sátt við Sláturfélag Suðurlands og Reykjagarð en þessi fyrirtæki eru hluti af sömu fyrirtækjasamstæðu. Greiða þau 45 m.kr. samtals í stjórnvaldssekt. · 1. október var gerð sátt við Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga. Greiðir félagið 40 m.kr. í stjórnvaldssekt. · 6. október var gerð sátt við Norðlenska og greiðir fyrirtækið 30 m.kr. í stjórnvaldssekt. · 8. október var gerð sátt við Kjarnafæði og greiðir fyrirtækið 20 m.kr. í stjórnvaldssekt. · 12. nóvember sl. var gerð sátt vegna Kjötbankans. Í henni voru viðurkennd brot fyrirtækisins. Forsendur voru hins vegar ekki til álagningar sekta m.a. vegna gjaldþrots Kjötbankans. Síld og fiskur og Matfugl óskuðu eftir sáttarviðræðum við Samkeppniseftirlitið en þær viðræður skiluðu ekki niðurstöðu. Þáttur þessara fyrirtækja er því enn til rannsóknar. Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, sem birt er í dag, tekur aðeins til þeirra fyrirtækja sem gert hafa sátt við eftirlitið.
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Sjá meira