Viðskipti innlent

Malcolm Walker forstjóri Iceland kemur Jóni Ásgeiri til varnar

„Jón Ásgeir var fyrsti utanaðkomandi maðurinn sem koma auga á mikla möguleika á viðsnúningi hjá Big Food Group svo langt aftur í tímann sem 2002 þegar Baugur fjárfesti fyrst í félaginu," segir Walker
„Jón Ásgeir var fyrsti utanaðkomandi maðurinn sem koma auga á mikla möguleika á viðsnúningi hjá Big Food Group svo langt aftur í tímann sem 2002 þegar Baugur fjárfesti fyrst í félaginu," segir Walker
Malcolm Walker forstjóri Iceland verslunarkeðjunnar í Bretlandi hefur komið Jóni Ásgeiri Jóhannessyni til varnar og segir að stjórn og starfsfólk Iceland muni ætíð verða Jóni Ásgeiri verulega þakklát fyrir hlut hans í því að koma keðjunni til vegs og virðingar.

Þessi orð lætur Walker falla í samtali við RetailWeek. Þar er rætt við Walker í framhaldi af því að Jón Ásgeir sagði sig úr stjórn Iceland vegna stefnu slitastjórnar Glitnis gegn honum fyrir dómstóli í New York.

„Jón Ásgeir var fyrsti utanaðkomandi maðurinn sem koma auga á mikla möguleika á viðsnúningi hjá Big Food Group svo langt aftur í tímann sem 2002 þegar Baugur fjárfesti fyrst í félaginu," segir Walker. „Hann var svo í lykilhlutverki við að ljúka yfirtökunni á félaginu 2005 með hópi íslenskra fjárfesta 2005."

Walker segir að sagan muni sýna að þessi yfirtaka hafi verið árangursríkasta breyting á skráðu félagi yfir í óskáð í breskri verslunarsögu. Árið 2009 hafi Iceland náð þeim áfanga að ná methagnaði samhliða því að vera kosið í hóp bestu bresku fyrirtækja að vinna fyrir að mati starfsmanna þess.

Þá segir Walker að rík ástæða sé til þess að þakka Jóni Ásgeiri fyrir allt sem hann hefur gert til þess að auka veg og virðingu Iceland, það traust sem hann sýndi Walker og öðrum stjórnendum og framlag hans til stjórnunnar keðjunnar frá árinu 2005.

Það er Baldvin Valtýsson, forstöðumaður skrifstofu Landsbankans í London, sem tekið hefur við stjórnarformannsstöðunni í Iceland af Jóni Ásgeiri.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×