Lyf og heilsa ætlar að leita til dómstóla 26. febrúar 2010 13:35 „
Það er því staðföst trú okkar að dómstólar kveði upp hlutlausan dóm en þangað munum við leita til þess að fá fullnaðarúrskurð í þessu máli," segtir Guðni B. Guðnason, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu í yfirlýsingu sem hann hefur sent um úrskurð Samkeppniseftirlitsins í dag.Yfirlýsingin að öðru leyti hljóðar svo: „Lyf og heilsa lýsir furðu sinni yfir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um brot fyrirtækisins á samkeppnislögum. Apótek Vesturlands á Akranesi kvartaði til Samkeppniseftirlitsins yfir að Lyf og heilsa lækkaði verð á vörum í verslun sinni á Akranesi haustið 2007 til að koma til móts við neytendur. Stuttu síðar framkvæmdi Samkeppniseftirlitið húsleit í húsakynnum Lyfja og heilsu.Á þeim tímapunkti hafði Apótek Vesturlands náð 40-50% markaðshlutdeild á Akranesi á einungis örfáum mánuðum. Við teljum því fráleitt að aðgerðir okkar hafi á einhvern hátt leitt til óeðlilegra samkeppnisaðstæðna. Lyf og heilsa telur einsýnt að meint markaðsráðandi staða getur ekki hafa verið til staðar þar sem fyrirtækið tapaði helming af markaðshlutdeild á stuttum tíma.Verðlækkun Lyfja og heilsu hafði í engum tilfellum í för með sér að vöruverð færi undir kostnaðarverð heldur var um að ræða lækkun á ákveðnum vörum til að mæta samkeppni. Lækkanir tóku gildi eftir að Apótek Vesturlands opnaði og í kjölfar þess að upplýsingar bárust frá viðskiptavinum um að Apótek Vesturlands hefði lækkað vöruverð sitt. Slíkt kallast eðlileg samkeppni. Það er raunar með ólíkindum að fyrirtækið sé dæmt fyrir brot á samkeppnislögum þegar það bíður lægri hlut í samkeppninni og er í raun gert ókleift að taka þátt í virkri samkeppni.Markaðshlutdeild Lyfja og heilsu er um 35%. Samkeppniseftirlitið telur þrátt fyrir þetta að Lyf og heilsa sé með "sameiginlega" markaðsráðandi stöðu á höfuðborgarsvæðinu en verður þá að taka aðal samkeppnisaðilann Lyfju með í þá skilgreiningu. Sú skilgreining er síðan yfirfærð yfir á allt annan markað á Akranesi. Lyf og heilsa og Lyfja eru í samkeppni og engin tengsl eru á milli félaganna. Sú "sameiginlega" markaðsráðandi staða er talin hafa áhrif á markaðinn á Akranesi en Lyfja rekur enga lyfjabúð á Akranesi.Samkeppniseftirlitinu er ætlað að standa vörð um hagsmuni neytenda. Með ákvörðun sinni hindrar Samkeppniseftirlitið fyrirtækið í að stunda eðlilega samkeppni og leggur á íþyngjandi viðurlög. Aðgerðir Samkeppniseftirlitsins hafa leitt til þess að líkur eru á að einungis eitt apótek starfi á Akranesi með sérstökum stuðningi eftirlitsins.Þá gerir Lyf og heilsa alvarlega athugasemd við undirbúning að húsleit þeirri er Samkeppniseftirlitið framkvæmdi í höfuðstöðvum Lyfja og heilsu haustið 2007. Samkvæmt þeim gögnum sem fyrir liggja þá var sú húsleit einvörðungu byggð á viðtali við Ólaf Adolfsson einn af eigendum Apóteks Vesturlands, á netmiðlinum dv.is. Vandaðri undirbúningur hefði leitt í ljós að forsendur fyrir markaðsráðandi stöðu Lyfja og heilsu voru ekki til staðar á Akranesi.Með afar ósmekklegum hætti hefur þeim skilaboðum verið komið á framfæri að keðjan Lyf og heilsa sé að klekkja á einyrkjanum Ólafi Adolfssyni. Hið rétta er að Apótek Vesturlands er í meirihlutaeigu Guðmundar Reykjalíns og Hjördísar Ásbergs sem bæði eru athafnamenn í íslensku atvinnulífi.Samkeppniseftirlitið bæðir rannsakar mál og tekur íþyngjandi ákvarðanir. Það þykir okkur óeðlilegt og er raunar á skjön við það sem gerist í löndunum í kringum okkur.Því virðist að sektarákvörðun Samkeppniseftirlitsins sé réttlæting fyrir ákvörðun um húsleit sem byggð var á afar hæpnum forsendum. Ekki er vitað til að nokkurri húsleit Samkeppniseftirlitsins hafi lokið með því að stofnunin dragi ákvarðanir til baka um sekt sem vekur upp spurningar um vinnubrögð."
Mest lesið Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Viðskipti innlent Ráðin markaðsstjóri Prís Viðskipti innlent Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Atvinnulíf Fleiri fréttir Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Sjá meira
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent
Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Atvinnulíf
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent
Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Atvinnulíf