Óvíst hvort efnahagssamdráttur vinni á verðbólgunni 28. maí 2010 09:05
Greining MP Banka segir að alls óvíst sé að langvinnur efnahagssamdráttur á Íslandi megni að vinna á verðbólgunni. Þetta kemur fram í Markaðsvísi greiningarinnar undir fyrirsögninni „Verðbólgan er lífsseig".„Verðbólgan í maí er 7,5% en vísitala neysluverðs hækkaði um 0,41% frá því í apríl samkvæmt mælingu Hagstofunnar. Hækkunin er töluvert meiri en við spáðum. Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst meira en við áttum von á og auk þess hækkuðu innlendir þjónustuliðir enn meira en við reiknuðum með," segir í Markaðsvísinum.„Verðhækkunin nú er umfram væntingar og eftir ládeyðu á skuldabréfamarkaði undanfarna daga glæddust viðskipti í morgun. Viðskipti með íbúðabréf námu tæpum 4 mö.kr og hafði ávöxtunarkrafa þeirra lækkað um 7 til 16 punkta. Ávöxtunarkrafa lengstu flokka ríkisbréfa hækkaði um 2 til 6 punkta.Þrátt fyrir verulegan efnahagssamdrátt er verðbólga enn langt yfir verðbólgumarkmiði. Verðbólgan stafar nú fyrst og fremst af kostnaðarhækkunum.Þegar líður á árið má búast við að launahækkanir leggist á sveif með lágu gengi krónunnar, háum fjármagnskostnaði fyrirtækja og hækkandi sköttum og valdi frekari þrýstingi á verðlag. Því er alls óvíst að langvinnur efnahagssamdráttur megni að vinna á verðbólgunni að þessu sinni. Við reiknum með því að verðbólgan yfir árið verði um 4%."
Mest lesið Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Sjá meira