Viðskipti innlent

Applicon semur við bandarískt stórfyrirtæki

Applicon Solutions, sem er í eigu Nýherja, hefur gert samning við bandaríska fyrirtækið Celanese um sölu á aðgangsstýringarkerfi (APM) fyrir SAP viðskiptahugbúnað.

Í tilkynningu segir að APM lausnin (Applicon Authorization Process Manager) var þróuð hjá Applicon Solutions í Danmörku og hefur verið innleidd hjá fyrirtækjum í Danmörku og á Íslandi og víðar. Lausnin verður notuð til þess að efla aðgangsstýringar í SAP hjá Celanese, en félagið er leiðandi í efnaiðnaði á heimsvísu. Hjá Celanese starfa um 7.400 manns víða um heim.

Applicon Solutions, sem hefur aðsetur í Danmörku, hefur lagt aukna áherslu á sölu lausna í Bandaríkjunum að undanförnu.

„Við höfum séð áhugaverða þróun á bandaríska markaðnum því mörg vel þekkt fyrirtæki hafa sýnt áhuga á lausnum okkar. Þetta getur gefið tilefni til að ætla að bandaríski markaðurinn sé að taka við sér á ný," segir Ole Sølvsten Hemmingsen framkvæmdastjóri Applicon Solutions. Hann segir að danski markaðurinn sé ennfremur að ná sér eftir lægð á síðasta ári, en meðal samninga sem félagið hefur gert þar í landi er við lampaframleiðandann Louis Poulsen.

Applicon Solutions er eitt af fimm Applicon félögum Nýherja. Hjá félögum starfa um 170 sérfræðingar í Danmörku, Svíþjóð og á Íslandi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×