Slitastjórnir ósammála um innlán 28. maí 2010 04:00 Slitastjórn og skilanefnd Landsbanka Íslands héldu blaðamannafund að loknum kröfufundi á Hilton Nordica-hótelinu í gær. Á annað hundrað fulltrúa kröfuhafa mættu til þess fundar en mikill ágreiningur er um hvernig eigi að flokka kröfur í þrotabú bankans.Fréttablaðið/Vilhelm
Slitastjórn Landsbanka Íslands viðurkennir svokölluð heildsöluinnlán sem forgangskröfur og túlkar neyðarlögin með öðrum hætti en slitastjórn Glitnis sem flokkar heildsöluinnlán þess banka með almennum kröfum. „Þetta er lagalegt mat okkar,“ segir Kristinn Bjarnason, formaður slitastjórnar Landsbankans, spurður hvers vegna afstaðan sé önnur en við uppgjör Glitnis. „Okkar niðurstaða var sú að heildsöluinnlán féllu undir skilgreiningu íslenskra laga um innstæður og þar af leiðandi nytu þær forgangs.“ Ljóst er að 300-400 dómsmál verða höfðuð vegna ágreinings kröfuhafa og slitastjórnar um meðferð krafna. Kristinn Bjarnason sagði að kröfuhafar hefðu gert ágreining við hverja einustu kröfu sem slitastjórnin vill viðurkenna forgang á. Verðmæti heildsöluinnlána hjá Landsbankanum er 158 milljarðar króna. Þetta eru fjármunir sem ýmis samtök og opinberir aðilar, til að mynda bresk sveitarfélög, áttu á reikningum hjá Landsbankanum við hrun bankans. Stærstur hluti forgangskrafna er innstæður á Icesave-reikningum. Þær nema 1.161 milljarði króna. Eignir bankans eru metnar á 1.159 milljarðar króna. Staðfesti dómstólar afstöðu slitastjórnarinnar um að Icesave-kröfur og heildsöluinnlán eigi að telja til forgangskrafna munu eignir bankans duga til þess að greiða um 88% til forgangskröfuhafa. Heildarskuldir bankans eru 3.427 milljarðar króna. Almennir kröfuhafar fá ekkert greitt upp í sínar kröfur. Miðað við það yfirlit sem kynnt var í gær munu kröfuhafar tapa samtals 2.268 milljörðum króna á falli Landsbankans og eignirnar duga fyrir greiðslu um 34 prósent af heildarskuldum bankans. Dómsmeðferð stærstu ágreiningsmálanna er þegar komin í gang, meðal annars mál þar sem reynir á gildi neyðarlaganna og stöðu Icesave-reikninga í kröfuröðinni. Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndarinnar, sagði að nokkur ár mundi taka að fá niðurstöður dómsmála um helstu ágreiningsefnin. Hann sagðist búast við að 8-10 ár gætu liðið áður en uppgjöri Landsbankans lýkur. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Sjá meira