Starfsmenn óski eftir gjaldþrotaskiptum félaga sinna Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. maí 2010 16:28 John Mack, varaformaður stjórnar Íslandsbanka, telur að hvatakerfið hafi verið gagnrýnivert.
Stjórn Íslandsbanka beinir því til starfsmanna sinna að einkahlutafélög núverandi starfsmanna bankans, sem stofnuð voru fyrir tilstilli Glitnis banka hf. og voru hluti af hvata- og tryggðakerfi bankans, verði gefin upp til gjaldþrotaskipta. Um er ræða 9 einkahlutafélög sem fengu lán hjá Glitni banka hf. á árinu 2008 upp á samtals um 4,2 milljarða króna til hlutabréfakaupa í bankanum. Níu núverandi starfsmenn Íslandsbanka voru í hópi starfsmanna sem í maí 2008 þáðu tilboð vinnuveitanda síns um stofnun einkahlutafélags í þeirra eigu, segir í tilkynningu frá Íslandsbanka. Félögunum var veitt lán til kaupa á hlutabréfum í Glitni Banka hf. Þetta fyrirkomulag var kynnt fyrir starfsmönnunum af hálfu bankans sem hluti af hvata- og tryggðarkerfi bankans með sambærilega virkni og kaupréttur. Hlutabréfin mátti ekki selja fyrr en allt að 3 árum liðnum, samkvæmt lánasamningi. Hlutabréfakaupin voru tilkynnt til regluvarðar Glitnis banka. Samkvæmt upplýsingum stjórnar var enginn arður greiddur út úr félögunum og fjárhagslegur ávinningur umræddra starfsmanna var því enginn af þessum samningum, samkvæmt tilkynningu frá Íslandsbanka. „Stjórn Íslandsbanka telur þessa tegund hvatakerfis gagnrýniverða. Þar sem lánveitingar af þessu tagi hafa verið mikið í umræðunni telur stjórnin rétt að upplýsa um niðurstöðu sína opinberlega. Það er niðurstaða stjórnar að lánamál umræddra einkahlutafélaga verði afgreidd með sama hætti og önnur sambærileg mál í samræmi við almennar lánareglur bankans. Það hefur í för með sér að félögin fari í gjaldþrotameðferð," segir John E. Mack, varaformaður stjórnar Íslandsbanka, sem á sæti í starfskjaranefnd bankans.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira