Viðskipti innlent

GBI vísitalan hækkaði töluvert í miklum viðskiptum

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,6% í dag í miklum viðskiptum eða 20,2 milljörðum kr. og er þetta mesta hækkun vísitölunnar síðan í byrjun desember 2009. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,6% í 4,9 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,6% í 15,3 milljarða kr. viðskiptum.

 

 

Vísitala................ Gildi ....1 dagur.. 1 vika

GAMMA:GBI...... 181,51... 0,62%... 0,44%

GAMMAi:Vtr...... 185,39... 0,63%... 0,2%

GAMMAxi:Óvtr.. 162,94... 0,59%... 1,06%

Heildarvelta Skuldabréfa: 20,15 ma

Heildarvelta Íbúðabréfa (verðtryggð): 4,86 ma

Heildarvelta Rikisbréfa (óverðtryggð): 15,29 ma

Vísitölurnar eru settar 100 þann 1. janúar 2005 og sýna heildarávöxtun helstu skuldabréfa á markaði (Íbúðabréf og Ríkisbréf með viðskiptavakt). Skuldabréfin eru hlutfallsvigtuð miðað við markaðsverðmæti þeirra í hlutfalli af heildarmarkaðsverðmæti bréfa í vísitölunni. Birting ofangreindra upplýsinga er heimil gegn því að heimildar sé getið. Skuldabréfavísitölur GAMMA eru reiknaðar og birtar af GAM Management hf., óháðu og sérhæfðu fjármálafyrirtæki með starfsleyfi frá FME sem tekur til reksturs verðbréfasjóða og fjárfestingarráðgjafar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×