Vilja úrskurð um lögmæti auglýsinga ráðherra 28. maí 2010 14:22
Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) hafa farið fram á það við utanríkisráðuneytið að það kanni hvort auglýsingar Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um tollkvóta standist lög. Ráðherrann breytti fyrirkomulagi þessara auglýsinga er hann tók við embætti og nú er svo komið að fáir vilja bjóða í þá tollkvóta sem eru í boði. Fjallað er um málið á heimasíðu SVÞ. Þar segir að nýverið auglýsti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið eftir tilboðum í tollkvóta fyrir ýmsar landbúnaðarafurðir, en ráðuneytið er skuldbundið til að auglýsa með þessum hætti eftir tilboðum samkvæmt skuldbindingum okkar við Alþjóðaviðskiptamálastofnunina (WTO). Allt þar til á síðasta ári voru auglýsingar þessar með þeim hætti að um var að ræða toll pr. kg. Reynslan sýndi að margir gerðu tilboð í þessa kvóta enda gat verið eftir nokkru að slægjast meðan auglýst var með þessu hætti. Bæði á síðasta ári og aftur á þessu ári eru auglýsingar ráðuneytisins með þeim hætti, að kominn er verðtollur sem er það hár að telja má í meira lagi vafasamt að nokkur fyrirtæki sjái sér hag í því að bjóða í tollkvótana. Ekki verður annað ráðið af þessari breytingu en það að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið ætli sér að koma í veg fyrir að íslenskir neytendur fái notið góðs af þeim afurðum sem fluttir yrðu inn á grundvelli skuldbindinga okkar við WTO. Slíkt er augljóslega fullkomlega óásættanlega hvernig sem á málið er litið. SVÞ hefur sent erindi til utanríkisráðuneytisins vegna þessa og óskað eftir því að ráðuneytið kanni hvort þessi aðferð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins standist skuldbindingar okkar gagnvart WTO. Svars utanríkisráðuneytisins er að vænta á næstu dögum.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Bein útsending: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Fleiri fréttir Erlent félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Sjá meira