Rekstrarkostnaður íslenskra lífeyrissjóða lægstur innan OECD 15. nóvember 2010 09:02
Rekstrarkostnaður lífeyrissjóða á Íslandi og í Danmörku er lægri en í nokkrum öðrum aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hrafni Magnússyni framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Þar segir að nýjustu tölur þar að lútandi eru frá 2007 og rekstrarkostnaður íslenskra og danskra lífeyrissjóða svaraði þá til 0,2% af heildareignum sjóðanna. Hlutfallið í Finnlandi, Þýskalandi og Austurríki var 0,4% en hæst var það í Tékklandi, 1,4%, eins og meðfylgjandi upplýsingar frá OECD sýna. Landssamtök lífeyrissjóða telja nauðsynlegt að koma þessu á framfæri í ljósi fullyrðinga stjórnarmanns í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, Ragnars Þórs Ingólfssonar, um „glórulausan" rekstrarkostnað lífeyrissjóða á Íslandi. Hann er fastagestur í Silfri Egils, hefur jafnan uppi stór orð um lífeyrissjóði og starfsemi þeirra og umgengst staðreyndir býsna frjálslega á stundum í málflutningi sínum. Ragnar Þór gagnrýnir nú rekstrarkostnað sjóðanna harðlega og telur auk þess rétt að sameina alla lífeyrissjóði Íslendinga í einn sjóð, sem væntanlega yrði þá á forræði ríkisins. Það er vissulega sjónarmið út af fyrir sig en hefur tæplega mikinn hljómgrunn í röðum sjóðfélaga innan hins almenna lífeyrissjóðakerfis. Staðreyndin er sú, og auðveldlega má sannreyna þá fullyrðingu, að víða um heim er bent á íslenska lífeyrissjóðakerfið sem fyrirmynd. Jafnframt er eftir því tekið að kostnaður við rekstur þess er með því minnsta sem þekkist. Tilefni gefst svo hér til að benda á að lífeyrissjóðum hefur fækkað mjög á undanförnum árum. Fyrir um tveimur áratugum voru þeir alls um 90 talsins en nú tekur 31 sjóður við iðgjöldum og fimm þeir stærstu ráða yfir 60% heildareigna lífeyrissjóða landsmanna. Tíu stærstu sjóðirnir ráða yfir um 80% eigna allra lífeyrissjóða. Lífeyrissjóðum á Íslandi mun fækka enn frekar. Nýlega hafa til dæmis fjórir lífeyrissjóðir sameinast í Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda og meðal minnstu sjóðanna, sem nú eru starfandi, eru nokkrir sjóðir sveitarfélaga sem taka ekki við nýjum sjóðfélögum. Þeir munu því sjálfkrafa leggjast af á næstu árum..
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Sjá meira