Milljónasta áltonnið framleitt á Reyðarfirði 17. desember 2010 15:27
Milljónasta tonnið var framleitt í álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði í vikunni, en framleiðsla hófst í álverinu í apríl 2007. Verðmæti milljón tonna af áli eru um 265 milljarðar króna miðað við álverð á markaði og gengi dollarans nú, en verðmæti útfluttra afurða frá Fjarðaáli frá upphafi nemur um 260 milljörðum króna. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, segir þetta ánægjulegan áfanga. „Við hjá Fjarðaáli erum afar stolt af okkar framleiðslu. Upphaflega var talið að framleiðslugeta álversins yrði um 346.000 tonn á ári, en framleiðslan hefur reynst meiri og nýtt starfsleyfi gerir ráð fyrir að hún verði aukin í allt að 360.000 tonn. Verðmæti útflutnings okkar á síðasta ári var um 75 milljarðar króna og um 40% af því varð eftir á Íslandi," segir hann. Samtals starfa um 800 manns á álverssvæðinu í Reyðarfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alcoa. Tómas Már segir að hlutfall virðisaukandi vöru hjá Fjarðaáli fari vaxandi sem eykur mjög verðmæti útflutningstekna. Einnig hefur framleiðsla í kerskála álversins í Reyðarfirði verið aukin með bættri straumnýtingu. Milljónasta áltonnið, var framleitt í víravél álversins og notað í 9,5 mm álvír í rafmagnskapla. Vírarnir eru nú í gámi um borð í skipi á leið til dreifingar í Mið-Evrópu. Álver Fjarðaáls framleiðir hreint gæðaál, álvíra og álblöndur sem m.a. eru notaðar í bílaiðnaði. Stærstur hluti útflutningsvara Fjarðaáls fer til meginlands Evrópu.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Sjá meira