Losa þarf Álftanes við 4,1 milljarðs skuldbindingar 17. desember 2010 10:43
Fjárhaldsstjórn Álftanes hefur skilað af sér skýrslu um fjárhag sveitarfélagsins og lausnir á þeim vanda sem sveitarfélagið er í. Þar kemur m.a. fram að losa þurfi sveitarfélagið við skuldbindingar upp á 4,1 milljarð kr. og jafnframt að setja þurfi a.m.k. 5% álag á útsvar íbúa Álftanes fram til ársins 2014. Í lokaorðum skýrslunnar segir: „Það er niðurstaða fjárhaldsstjórnar og í samræmi við niðurstöðu sem fram kemur í skýrslu KPMG, dags. í janúar 2010, að til þess að leysa fjárhagsvanda sveitarfélagsins Álftanes þurfi að leysa sveitarfélagið alfarið undan öllum leiguskuldbindingum, sem eru utan efnahags. Samkvæmt ársreikning sveitarfélagsins 2009 eru þessar skuldbindingar 4.106 millj. kr. Þetta þýðir að skuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins fari úr 518% af tekjum í árslok 2009 í rétt innan við 250%í árslok 2010. Áætlunin sýnir að sveitarfélagið á að geta staðið undir skuldum að þessari stærð. Hins vegar er ljóst að ekki verður mikið svigrúm til framkvæmda og/eða viðhalds. Til þessa að sveitarfélagið geti staðið í skilum þarf að vera a.m.k. 5% álag á útsvar fram til ársins 2014. Með sameiningu við annað sveitarfélag ynnist hins vegar það mikil hagræðing að hægt ætti að vera að leggja 5% álagið niður. Því er það niðurstaða fjárhaldsstjórnar að samhliða þessum aðgerðum þurfi sveitarfélagið að sameinast öðru sveitarfélagi. Nú standa yfir viðræður við viðkomandi aðila um tillögu fjárhaldsstjórnar um lausn á fjárhagsvanda sveitarfélagsins er varða m.a. leiguskuldbindingar þess. Stefnt er að því að niðurstaða í þeim viðræðum liggi fyrir fyrir jól. Niðurstaða fjárhaldsstjórnar er því sem hér segir: Fara þarf í verulegar hagræðingaraðgerðir í rekstri sveitarfélagsins, skv. meðfylgjandi fjárhagsáætlun. Flestum þessara aðgerða hefur nú þegar verið hrundið í framkvæmd. Sveitarfélagið geri greiðsluáætlun fyrir hvern mánuð næsta árs og að henni verði fylgt eftir. Sé rekstrarliður að fara fram úr áætlun verði þegar gripið til aðgerða. Sveitarfélagið verði leyst undan öllum leiguskuldbindingum skv. fyrir liggjandi tillögu þar um. Sveitarfélagið sameinist öðru sveitarfélagi fyrir mitt næsta ár. Nái framanritað fram að ganga ættu íbúar sveitarfélagsins fljótlega að verða varir við jákvæðar breytingar í samfélagi þeirra. Brýnt er að þetta nái fram að ganga þannig að íbúarnir þurfi ekki að líða lengur fyrir það óvissuástand sem þeir hafa þurft að búa við um langa hríð."
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira