Gagnaverin samkeppnishæf 17. desember 2010 06:30 Uppbygging gagnavers í Hafnarfirði getur haldið áfram ef Alþingi samþykkir breytingatillögur þingmannanna, segir framkvæmdastjóri Thor Data Center. Fréttablaðið/Vilhelm
Þingmenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hafa náð samkomulagi um að leggja til veigamiklar breytingar á frumvarpi fjármálaráðherra um virðisaukaskatt. Breytingarnar eru forsenda þess að gagnaver hér á landi verði samkeppnishæf við gagnaver í ríkjum Evrópusambandsins. „Þetta er mjög gott fyrir okkur, og gerir okkur kleift að halda áfram á þeirri braut sem við erum á,“ segir Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri gagnaversins Thor Data Center. „Ef Alþingi samþykkir þessar breytingar er það niðurstaða sem okkar kúnnar hafa beðið eftir lengi,“ segir Jón. Gagnaverin lögðu til þrenns konar breytingar á frumvarpi fjármálaráðherra um breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Fjallað var um málið í efnahags- og skattanefnd í gær. Á fundi nefndarinnar var samþykkt að leggja til þá breytingu á frumvarpinu að erlendir viðskiptavinir gagnavera þurfi ekki að greiða virðisaukaskatt af tækjabúnaði til að nota í gagnaverum, segir Magnús Orri Schram, fulltrúi Samfylkingarinnar í efnahags- og skattanefnd. Sú breyting ein og sér hefði ekki dugað til að gera gagnaver hér á landi samkeppnishæf, segir Jón hjá Thor Data Center. Heimildir Fréttablaðsins herma að þingmenn Vinstri grænna í efnahags- og skattanefnd hafi verið andvígir því að leggja til frekari breytingar á frumvarpinu. Þingmenn annarra flokka vildu hins vegar ganga lengra. Á tíunda tímanum í gærkvöldi náðist að lokum samkomulag milli þingmanna Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Fulltrúar flokkanna í efnahags- og skattanefnd hafa ákveðið að flytja tillögu þegar Alþingi fjallar um málið, sem verður líklega í dag. Þeir munu leggja til að erlendir viðskiptavinir gagnaveranna þurfi ekki að greiða virðisaukaskatt af þjónustu veranna. Verði það niðurstaða Alþingis er það í samræmi við lög ESB og myndi hafa mjög jákvæð áhrif á samkeppnisumhverfi gagnavera á Íslandi segir Jón. Samtök íslenskra gagnaverafyrirtækja töldu einnig nauðsynlegt að falla frá kröfu um að erlend fyrirtæki sem nýta sér þjónustu gagnavera hafi starfsstöð á Íslandi. Um það náðist ekki samstaða í efnahags- og skattanefnd. Jón segir það miður og eflaust muni það stöðva einhverja viðskiptavini. Ekki sé útilokað að Alþingi geri frekari breytingar á frumvarpinu. brjann@frettabladid.is
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Sjá meira