Landsvirkjun fjárfestir fyrir 1,5 milljarð á Norðausturlandi 17. desember 2010 17:59 Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Landsvirkjun áformar að fjárfesta fyrir 1,500 milljónir íslenskra króna í verkefnum á Norðausturlandi á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun fyrirtækisins sem samþykkt var á fundi stjórnar Landsvirkjunar í dag. Í áætluninni er gert ráð fyrir auknum fjármunum í rannsóknir og undirbúning virkjana í landshlutanum, bæði af hálfu Landsvirkjunar og dótturfélags hennar, Þeistareykja ehf. Landsvirkjun hefur þegar varið um 9 milljörðum íslenskra króna í rannsóknir á Norðausturlandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir að áætlað sé að verja rúmlega 720 milljónum króna til áframhaldandi rannsókna og annars undirbúnings á Þeistareykjum. Þar er fyrirhugað að boruð verði ein rannsóknarhola, farið verði í verkefni tengd vegagerð og fjárfest verði í frágangi við borholur. Auknu fé verður einnig varið til ýmissa rannsókna og mælinga. Fram kemur í tilkynningunni að á Þeistareykjum sé nú til reiðu orkugeta upp á um það bil 45 MW. Þá verður um 580 milljónum króna varið í rannsóknir og undirbúning á Kröflusvæði. Umfangsmestu rannsóknir á svæðinu beinast að því að ná tökum á nýtingu gufu úr holum með hátt sýrustig. Á Kröflusvæði er þegar til reiðu gufa fyrir 50-60 MW virkjun, ef mögulegt reynist að nýta súra gufu. Tæpar 200 milljónir króna eru áætlaðar í undirbúning Bjarnarflagsvirkjunar á næsta ári. Gert er ráð fyrir álagsprófunum borhola, úrvinnslu úr mælingum, öðrum rannsóknum auk fjárfestinga í mælibúnaði. Þar eru nú til reiðu um 45 MW, að því er fram kemur í tilkynningunni. Aukin áhersla verður jafnframt lögð á markaðsstarf af hálfu Landsvirkjunar á árinu 2011 sem meðal annars mun miða að því að ná samningum við viðskiptavini sem hafa áhuga á að byggja upp starfsemi á Norðausturlandi.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira