Nýjum bílum fjölgar mest hér og á Írlandi 17. desember 2010 08:00 Í nóvember í fyrra voru nýskráðir 63 bílar hér á landi. Í nóvember síðastliðnum var nýskráning nærri þrisvar sinnum meiri, eða 184 bílar. Aukningin nemur 192 prósentum. Fréttablaðið/Vilhelm
Hlutfallsaukning nýrra bíla hér á landi á þessu ári er með því mesta sem gerist meðal landa á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og hátt yfir meðaltali sem hljóðar upp á 5,1 prósents samdrátt milli ára. Þetta má lesa út úr nýjustu tölum ACEA, samtaka evrópskra bílaframleiðenda. Nýskráðum bílum hefur mest fjölgað á Írlandi, eða um 54 prósent fyrstu ellefu mánuði þessa árs. Hér á landi nemur fjölgunin 50 prósentum. Danir eru svo í þriðja sæti með tæplega 40 prósenta aukningu. Sé einungis horft til nýskráningar bíla í nóvember er sveiflan milli ára þó enn meira sláandi. Þá er um þreföldun að ræða bæði á Írlandi og Íslandi. Nýskráning bíla á Írlandi í nóvember í ár var 194,6 prósentum meiri en á sama tíma í fyrra. Hér nam aukning í nóvembermánuði árin 2009 og 2010 192 prósentum, fór úr 63 bílum í 184. „Við hjá Öskju teljum að bílasala á Íslandi hafi náð botninum fyrir allnokkru. Undanfarnar vikur og mánuði hefur verið talsverð aukning hjá okkur, bæði í fjölda tilboða til viðskiptavina, heimsóknum í sýningarsali og ekki síst í sölutölum,“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju. Hann telur þó einsýnt að næsta ár verði langt undir því sem nauðsynlegt sé til að halda heilbrigðri endurnýjun í bílaflota landsmanna. „En ég er sannfærður um að árið verður mun betra en 2010.“ Þá staðreynd að söluaukning nýrra bíla er einna mest hér í samanburði við aðra markaði Evrópu rekur Jón Trausti til þess að samdrátturinn hafi orðið svo miklu meiri hér en annars staðar. Þegar horft er til Evrópusambandslandanna allra kemur í ljós að nýskráningum fækkar fyrstu ellefu mánuði ársins um 5,7 prósent og um 5,1 prósent ef horft er til allra landa EES. Í tilkynningu ACEA kemur fram að allir helstu markaðir Evrópu hafi dregist saman. Þannig hafi samdráttur í skráningu nýrra bíla í nóvember numið 6,2 prósentum í Þýskalandi, 10,8 prósentum í Frakklandi, 11,5 prósentum í Bretlandi, 21,1 prósenti á Ítalíu og 25,5 prósentum á Spáni. Sé hins vegar horft til sölu frá janúar til nóvemberloka eykst sala á Spáni um 5,9 prósent, en samdráttur er mestur á Ítalíu, 8,2 prósent og í Þýskalandi, 25,2 prósent.olikr@frettabladid.is
Mest lesið Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Sjá meira