Viðskipti innlent

Sala skuldabréfa í útboðum stóð í stað milli mánaða

Heildarsala skuldabréfa í verðbréfaútboðum í mars 2010 nam 29,35 milljarða kr. á söluverði samanborið við 29,94 milljarða kr. mánuðinn áður.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 11,86 milljörðum kr. en þar af voru 7,99 milljarðar kr íbúðabréf útgefin af Íbúðarlánasjóði. Útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa námu 17,49 milljörðum kr. allt ríkisbréf.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×