Viðskipti innlent

Einhugur um vaxtalækkun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Már Guðmundsson seðlabankastjóri lagði til að stýrivextir yrðu lækkaðir um 0,75%
Már Guðmundsson seðlabankastjóri lagði til að stýrivextir yrðu lækkaðir um 0,75%
Allir nefndarmenn í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands voru sammála um að lækka skyldi stýrivexti um 0,75 prósentustig þegar ákvörðun um vexti var tekin þann 3. nóvember. Nefndarmenn ræddu lækkun vaxta um 0,75-1% og lagði seðlabankastjóri fram tillögu um 0,75 prósentustiga lækkun.

Allir nefndarmenn studdu tillöguna, þótt einn þeirra hefði viljað heldur meiri lækkun þar sem þjóðarbúskapurinn hefði reynst veikar en vænst hafði verið og verðbólga hjaðnaði hraðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×