Krónan styrkist áfram og raungengi hennar hækkar 6. maí 2010 12:00
Krónan heldur áfram að sækja í sig veðrið og stendur gengisvísitala krónunnar, sem vegur saman verð gjaldmiðla helstu viðskiptaþjóða Íslands gagnvart krónunni, nú þegar þetta er ritað (kl: 11:00) í 223,18 stigum og hefur ekki verið jafn lág síðan í byrjun júní á síðasta ári. Þá hækkaði raungengi krónunnar fimmta mánuðinn í röð í apríl. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að jafnframt hefur krónan haldið áfram að styrkjast gagnvart evru nú í morgun og kostar evran nú 164,25 kr. á millibankamarkaði með gjaldeyri. Hefur krónan ekki verið jafn sterk gagnvart evru síðan í byrjun apríl í fyrra. „Við teljum líklegast að styrking krónunnar eigi rætur að rekja til aukins gjaldeyrisinnflæðis vegna afgangs af vöru og þjónustuviðskiptum og ólíklegt að inngrip Seðlabanka skýri styrkinguna nú," segir í Morgunkorninu. Raungengi íslensku krónunnar hækkaði fimmta mánuðinn í röð í apríl síðastliðnum á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Hækkunin að þessu sinni nam 0,6% frá fyrri mánuði og hefur raungengið ekki verið hærra síðan í mars á síðasta ári. Hækkunin er til komin vegna hækkunar á nafngengi krónunnar um 0,6% á milli mars og apríl, en verðlagsþróun hér á landi og í helstu viðskiptalöndum okkar var með svipuðum hætti á tímabilinu. Þetta kemur fram í tölum sem Seðlabanki Íslands (SÍ) birti á þriðjudag. Þrátt fyrir þessa hækkun er raungengi krónunnar enn afar lágt í sögulegu samhengi en telja má mjög líklegt að það hafi nú þegar náð lágmarki sínu sem var í ágúst á síðasta ári. Frá því í ágúst hefur raungengi hækkað um tæp 7% en er þó enn rúmlega fjórðungi frá meðaltali sínu síðastliðin 10-20 árin. Í nýrri spá Seðlabanka Íslands sem birt var í Peningamálum í gær er gert ráð fyrir að raungengið verði að meðaltali einungis tæpum 4% hærra í ár en í fyrra. Lágt raungengi hefur meðal annars bætt samkeppnisstöðu útflutningsgreina og samkeppnisatvinnugreina en á móti hefur það valdið vanda hjá þeim fyrirtækjum sem eru mjög skuldsett í erlendri mynt. Telur bankinn líklegt að raungengi komi til með að haldast nokkuð lágt á næstu árum vegna mikillar skuldsetningar þjóðarbúsins í erlendri mynt og hárrar áhættuþóknunar á íslenskar fjáreignir.
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Sjá meira