Straumur fékk milljarða en Landsbanki sat eftir Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. desember 2010 18:40 Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans.
Átján milljarða króna lán sem Straumur fékk frá Landsbankanum sex dögum fyrir hrun og bankastjórar bankans eru látnir bera ábyrgð á var hluti af stærra samkomulagi um sölu á eignum sem Straumur virti ekki. Bankinn sat því uppi með eignirnar en Straumur fékk milljarðana. Slitastjórn Landsbankans krefur fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, um 37 milljarða króna í tveimur aðskildum kröfum. Önnur krafan er vegna 19 milljarða króna láns sem Landsbankinn veitti Straumi hinn 2. október 2008 aðeins sex dögum fyrir hrun. Samkvæmt heimildum fréttastofu var þessi lánveiting til komin vegna stærri viðskipta milli Landsbankans og Straums og hluti af uppgjöri vegna sölu á eignum, nánar tiltekið franska verðbréfafyrirtækinu Kepler Equities og írska verðbréfafyrirtækinu Merrion Capital. Þegar Landsbankinn var kominn af fótum fram, eftir þjóðnýtingu Glitnis, í september 2008 hafi verið leitað eftir því að auka eigið fé Landsbankans án þess að fara í hlutafjáraukningu. Straumur hætti við kaupin á Kepler og Merrion Þá hafi verið ráðist í það að selja Straumi Kepler og Merrion. Straumur átti í staðinn að fá lán í krónum að fjárhæð 19 milljarðar. Straumur hafi hins vegar ákveðið að falla frá kaupunum, en látið var hjá líða að tengja lánveitingu Landsbankans til Straums við viðskiptin með ákvæðum í lánasamningi. Straumur hafi þannig ekki efnt sinn hluta samkomulagsins en fengið átján milljarða í laust fé en Landsbankinn setið eftir með fyrirtækin tvö og gat ekki aðhafst þar sem ekki var ákvæði þess efnis í lánasamningi að bankinn gæti fallið frá lánveitingunni ef fallið yrði frá kaupum á fyrirtækjunum tveimur. Þessi lýsing á málsatvikum var borin undir heimildarmenn hjá þrotabúi Landsbankans, og ekki voru gerðar athugasemdir. Hins vegar lítur slitastjórnin svo á að afgreiðsla lánsins hafi verið bótaskyld vanræksla af hálfu bankastjóranna tveggja. Slitastjórnin hefur tekið skýrslu af þrjátíu einstaklingum í tengslum á athuganir á viðskiptum bankans fyrir hrun. Teknar voru skýrslur af bankaráðsmönnum eins og Björgólfi Guðmundssyni, hins vegar var engin skýrsla tekin af Björgólfi Thor. Leitað var eftir viðbrögðum hjá Björgólfi Thor við efni fréttarinnar þar sem hann var stærsti hluthafi beggja bankanna, Straums og Landsbankans, en talsmaður hans, Ragnhildur Sverrisdóttir, sagði að hann vildi ekki tjá sig.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira