Býst við 10-15% hækkun á flugfargjöldum Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 30. desember 2010 12:09 Björgólfur Jóhannsson býst við nokkurri hækkun á fargjöldum.
Forstjóri Icelandair segir að flugfargjöld geti hækkað um 10 til 15 prósent á næsta ári vegna aukinnar gjaldtöku ríkisins. Skattar og gjöld á fyrirtækið hækki um einn milljarð króna á næsta ári. Meðal þeirra skatta sem koma til með að hækka á næsta ári eru farþegaskattar, gistináttagjald, flugvallarskattar og fleiri. Björgólfur Jóhannesson, forstjóri Icelandair Group, býst við að hækkanirnar nemi ríflega milljarði fyrir fyrirtækið. Þær leggjast á þrjú félög innan Icelandair Group, það er að segja Icelandair, Icelandair Hotels og Flugfélag Íslands, en útreikningarnir byggja á farþegafjölda og seldum gistinóttum þessara fyrirtækja. Björgólfur segir að þessar hækkanir verði innheimtar að verulegu leyti hjá viðskiptavinum fyrirtækisins. „Ég ætla þá að þetta muni lenda allt í okkar gjöldum - og ef við horfum á innanlandsflugið þá getur þetta legið í 10-15% hækkun," segir Björgólfur. Hann býst við að prósentuhækkanirnar verði ekki eins miklar í millilandaflugi, en þó verði einhverjar hækkanir. Björgólfur segist hræddur um að skattahækkanirnar skili ekki auknum tekjum í ríkissjóð, þar sem samdráttur í eftirspurn geti vegið þyngra en hækkun skattanna. Hann vonar þó að hún hafi ekki áhrif á ferðamannastrauminn. „Það var búið að fara mjög myndarlega í átak sem var kallað Inspired by Iceland, þar sem ríkisstjórnin kom mjög myndarlega að málum," segir Björgólfur. Því sé undarlegt að þessi stefna sé tekin í beinu framhaldi og ögra þeirri vinnu sem var sett í þetta átak. Björgólfur segist þó átta sig á að staða hins opinbera sé erfið.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Sjá meira