Viðskipti innlent

Vöruskiptin hagstæð um 7 milljarða í desember

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir desember 2009 var útflutningur 42,0 milljarðar króna og innflutningur tæpir 35,1 milljarður króna. Vöruskiptin í desember voru því hagstæð um tæpa 7,0 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að hvað varðar útflutning þá eru vísbendingar um minna verðmæti útfluttra sjávarafurða en meira verðmæti útflutts áls í desember 2009 miðað við nóvember 2009.

Hvað varðar innflutning þá eru vísbendingar um minna verðmæti innflutts eldsneytis og hrá- og rekstrarvara í desember 2009 miðað við nóvember 2009.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×