Leiðrétting gengislána gæti kostað 200 til 250 milljarða 13. júlí 2010 07:18
Greining Arion banka segir að verði miðað við samningsvexti í gengislánum gæti leiðrétting þeirra kostað 200 til 250 milljarða kr. gróflega áætlað. Verði miðað við vexti Seðlabankans myndi það kosta um 100 milljarða kr. Í Markaðspunktum greiningarinnar segir að óháð því hvaða vaxtaviðmiðun verður notast við yrði höggið eignaleigufyrirtækjum gríðarlega þungbært, ekki síst þar sem eiginfjárhlutfall þeirra er í mörgum tilvikum takmarkað. Greining segir að ljóst megi vera að bankakerfið þolir leiðréttingu gengistryggðra lána heimila miðað við Seðlabankavexti en þar gæti verið um að ræða upphæð í kringum 50 milljarða kr. Verði miðað við samningsvexti gæti höggið fyrir bankana þó orðið meira eða yfir 100 milljarða kr. Yrði þá um að ræða allt að þriðjung eiginfjár bankanna sem myndi þá haldast yfir 8% lögbundnu viðmiði en það færi hinsvegar undir 16% viðmiðið sem sett var með reglugerð Fjármálaeftirlitsins eftir hrun. „Lánaleiðréttingar bankanna munu fyrst og fremst hafa áhrif á ríkissjóð ef þær verða umfram þolmörk bankanna miðað við núverandi eiginfjárstöðu," segir í Markaðspunktunum. „Núverandi meirihlutaeigendur Arion og Íslandsbanka eru skilanefndir Kaupþings og Glitnis sem starfa í umboði kröfuhafa. Það er ekki sjálfgefið að þessi eigendur sé tilbúnir að leggja fram nýtt hlutafé ef núverandi eigið fé myndi taka mikið högg við niðurfærslu gengislána. Þannig gæti ríkisvaldið ekki aðeins staðið frammi fyrir því að tapa hluta af því fjármagni sem þegar hefur verið lagt fram sem eigið fé í bankakerfið heldur einnig fyrir því verkefni að þurfa að endurfjármagna fjármálakerfið á nýjan leik. Hér er um verulegar fjárhæðir að ræða og til marks um það er ríkið með um 200 milljarða kr. undir í bönkunum núna þá í formi eigin fjár og víkjandi lána. En eigið fé bankanna þriggja er samtals um 350 milljarðar kr. Vaxtakostnaður ríkisins vegna viðbótar innspýtingar myndi auka útgjöld ríkissjóðs og þannig auka þörf á niðurskurði eða skattahækkunum. Niðurstaðan gæti reyndar hvatt áfram einkaneyslu til skamms tíma og þannig aukið skatttekjur ríkisins. Á hinn bóginn er hugsanlegt að geta bankakerfisins til að styðja við hagvöxt minnki til lengri tíma við slíka niðurstöðu sem myndi vega til minnkunar skatttekna ríkisins. Ef ólögmæti gengistryggðra samninga á hinsvegar aðeins við hluta lána, t.d. bara heimilin, og ef Seðlabankavextir verða hafðir til viðmiðunar við útreikning lána, er þó óvíst að þörf verði á eiginfjárinnspýtingu. Í því tilviki yrðu áhrifin á ríkissjóð takmörkuð."
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Sjá meira