Verðmæti álútflutnings jókst um 41,5% milli ára 7. maí 2010 11:55
Sé leiðrétt fyrir gengisbreytingum jókst verðmæti álútflutnings um 41,5% í apríl á föstu gengi miðað við sama tíma í fyrra og má þakka það verulegri verðhækkun á áli á tímabilinu. Útflutningsverðmæti sjávarafurða var rúm 17,1 milljarða kr. í mánuðinum og jókst um 9,3% frá sama tíma 2009.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um vöruskiptin í apríl. Þar segir að alls voru fluttar út vörur fyrir 40,8 milljarða kr. í apríl, sem er nokkuð meiri útflutningur en á sama tíma í fyrra, eða sem nemur um 23,1% á föstu gengi. Þessi aukning skýrist einna helst af auknum tekjum af útfluttum iðnaðarvörum og nam útflutningsverðmæti þeirra ríflega 21,6 milljarða kr. í mánuðinum en á sama tíma í fyrra var það 14,6 milljarðar kr.Vöruinnflutningur var 34,5 milljarða kr. í apríl og að teknu tilliti til gengisbreytinga var hann 7,6% meiri en í sama mánuði í fyrra. Skýring þessarar aukningar liggur að hluta til í að meira er flutt inn af fjárfestingarvörum, hrá- og rekstrarvörum og svo flutningatækjum en samanlagt var aukning þessara liða um 47,8% á föstu gengi.Aðrir liðir drógust saman milli ára. Sé leiðrétt fyrir gengisbreytingum var um 6,6% minna flutt inn af mat- og drykkjarvörum og 2,5% minna af neysluvörum (t.d. heimilistækjum og fatnaði).Afgangur vöruskipta á fyrstu fjórum mánuðum ársins er um 37,6 milljörðum kr. samanlagt sem er mun meiri afgangur en á sama tímabili í fyrra þegar hann var 27,5 milljarðar kr. Jafngildir þetta aukningu upp á 21,3% á föstu gengi.Ljóst er að mikill viðsnúningur hefur verið á vöruskiptum við útlönd frá því að fjármála- og gjaldeyriskreppan skall á hér á landi um haustið 2008. Hefur nú afgangur verið á vöruskiptum við útlönd í hverjum mánuði allt frá því í september 2008 en fyrir þann tíma hafði vöruskiptahalli nánast verið reglan undanfarin 5 ár eða svo, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Fleiri fréttir Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Sjá meira