Eignir Kaupþings jukust um 119 milljarða 28. september 2010 17:32 Kaupþing.
Verðmæti eigna Kaupþings banka jókst að raunvirði um 119 milljarða króna eða um 15% á fyrri helmingi ársins 2010 samkvæmt tilkynningu frá skilanefnd Kaupþings. Þá hefur verið leiðrétt fyrir áhrifum vegna 9% styrkingar á gengi krónunnar á tímabilinu. Nafnvirði heildareigna Kaupþings nemur 2.650 milljörðum króna í lok árshelmingsins en óveðsettar eignir bankans eru metnar á 833 milljarða. Þetta kemur fram í nýjum fjárhagsupplýsingum í skýrslu fyrir kröfuhafa bankans. Helstu breytingar á verðmæti eignasafnsins má rekja til aukningar á verðmæti eignarhluta bankans í ýmsum félögum sem hefur frá áramótum aukist um tæplega 34 milljarða króna. Þá hefur virði dótturfélaga aukist um 23 milljarða króna og virði lánasafns bankans hækkað um 18 milljarða króna. Stór hluti lánasafns Kaupþings var endurskipulagður á árunum 2008 og 2009 og má m.a. rekja hækkun á virði lánasafns bankans og breytingar á virði félaga í eigu bankans til þess. Skilanefnd Kaupþings býst við hærra endurgreiðsluhlutfalli á lánasafninu en áður. Þóknanatekjur af lánasafni bankans námu rúmum 800 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þær tekjur standa straum af nær öllum rekstrarkostnaði Kaupþings utan aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, þ.e. launum, húsaleigu og öðrum kostnaði. Þóknanatekjur á árinu 2009 voru um 1.300 milljónir króna. Heildarkostnaður við rekstur Kaupþings banka á fyrstu sex mánuðum ársins var 3,7 milljarðar króna sem er 0.28% af virði heildareigna. Þar af renna 435 milljónir króna í skattgreiðslur til ríkissjóðs sem samsvarar 12% af heildarkostnaði. Stærstur hluti kostnaðarins, eða 74%, er til kominn vegna aðkeyptrar sérfræðiráðgjafar sem nam rúmum 2,7 milljörðum króna. Helstu útgjöld koma til vegna erlendra fjármálaráðgjafa bankans, vinnu við endurheimtuaðgerðir erlendis og uppgjör á afleiðusafni bankans. Mikil áhersla hefur verið lögð á vinnu við endurheimtur vegna lána og viðskipta til félaga sem hafa engan undirliggjandi rekstur. Mörg þessara mála hafa það sameiginlegt að málshöfðun og önnur lagaleg úrræði tryggja best endurheimtur fyrir bankann. Sú vinna hefur nú þegar skilað góðum árangri í þágu kröfuhafa bankans og hefur tekist í fjölmörgum málum að verja stöðu bankans, tryggja endurheimtur og koma í veg fyrir rýrnun eigna. Vinna við rannsókn og endurheimtur mála af þessu tagi hefur staðið yfir frá haustinu 2008 og krefst mikillar samvinnu við alþjóðleg lögfræði- og endurskoðunarfyriræki sem skýrir að stórum hluta kostnað vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu. Handbært fé Kaupþings banka stóð í 195 milljörðum króna þann 30. júní og jókst um 19 milljarða frá síðustu áramótum. Að auki greiddi skilanefnd Kaupþings á árunum 2008 og 2009 um 130 milljarða króna til innstæðueigenda hjá útibúum Kaupþings í Þýskalandi, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Austurríki og gerði þannig upp allar innstæður í útibúum bankans erlendis.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira